Slökktu eld í strætóskýli í Kópavogi

Eldur kviknaði í strætóskýli.
Eldur kviknaði í strætóskýli. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Eldur kviknaði í strætóskýli í Hjallahverfinu í Kópavogi klukkan fjögur í dag. Vegfarandi sýndi snör viðbrögð og hafði náð að slökkva nánast allan eldinn þegar slökkviliðið bar að garði skömmu seinna. Slökkviliðsmenn kældu strætóskýlið niður.  

Strætóskýlið er stórskemmt og sér lögreglan um rannsókn málsins.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert