Teygði sig eftir vatnsflösku og rakst á bíl

mbl.is/Eggert

Nokkuð hefur verið um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum það sem af er vikunni. Bíll ökumanns, sem ók inn á rangan vegarhelming á Reykjanesbraut þegar hann var að teygja sig eftir vatnsflösku og leit þá af veginum, hafnaði á bíl sem kom á móti.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Ekki urðu slys á fólki en bifreiðirnar voru fluttar af vettvangi með dráttarbifreið.

Þá ók annar ökumaður aftan á bíl sem var kyrrstæður á gatnamótum. Ökumaðurinn sem ekið var aftan á kenndi eymsla eftir áreksturinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert