Katrín endurkjörin með pappír

Þessi mynd var ekki tekin í atkvæðagreiðslunni um formann VG …
Þessi mynd var ekki tekin í atkvæðagreiðslunni um formann VG því þar hafði ljósmyndurum verið vísað á dyr. Hún hefði þó allt getað verið tekin þá, því Katrín Jakobsdóttir var endurkjörin formaður VG með öllum greiddum atkvæðum. mbl.is/Hari

„Það er náttúrulega rakin snilld að fara í allt þetta umstang í kosningum þar sem aðeins einn er í framboði. Þetta gæti enginn flokkur nema við,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna og fundarstjóri á landsfundi Vinstri grænna þegar kjósa átti í embætti formanns flokksins.

Katrín Jakobsdóttir var ein í framboði og var hún endurkjörin með öllum atkvæðum viðstaddra, 187 talsins.

Tilkynnt hafði verið í aðdraganda fundarins, að hann yrði bæði kjöt- og pappírslaus af umhverfisástæðum, og þess í stað yrði kosið rafrænt. Tæknin var þó eitthvað að stríða fundarmönnum og brá Steingrímur fundarstjóri að lokum á það ráð að kjósa fyrir allra augum. Heppilega höfðu rauð og græn pappírsspjöld sem á var letrað Já og Nei verið undirbúin undir fundinn pappírslausa og eftir að hafa borið undir fundarmenn hvort einhver setti sig upp á móti slíkri atkvæðagreiðslu, sem enginn gerði, var látið til skarar skríða.

Blaðamönnum vísað á dyr

Áður en að því kom spurði fundarstjóri hvort einhver óskaði þess að fjölmiðlum yrði vísað úr salnum meðan á kosningunni stóð, úr því hún væri jú fyrir allra augum. Ósk um það barst og þurftu fjölmiðlamenn og ljósmyndarar, sem sóttu fundinn, því að bíða frammi á gangi rétt á meðan á atkvæðagreiðslunni stóð. Samtímis sat blaðamaður mbl.is uppi í Hádegismóum og horfði á kosningarnar í beinni, enda fundinum streymt á heimasíðu VG. Hinir brottreknu missti þó af litlu enda formaðurinn kjörinn samhljóða, eins og fyrr segir.

Tæknin stríðir Kolbeini Óttarssyni Proppé, þingmanni VG.
Tæknin stríðir Kolbeini Óttarssyni Proppé, þingmanni VG. mbl.is/Hari

Stutt hlé var gert á fundinum að atkvæðagreiðslu lokinni, meðan unnið var í tæknimálum. Til stendur að kjósa í embætti varaformanns en þar er aðeins einn í framboði, Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra. Að svo búnu verður kosið í stjórn, en þar komast færri að en vilja.

Leysist tæknivandamálin ekki innan skamms hefur fundarstjóri boðað að gripið verði til blaðs og blýants.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert