„Sárt og óþolandi“ að vera bendlaður við spillingu

„Eins og mér þykir það sárt og óþolandi að vera …
„Eins og mér þykir það sárt og óþolandi að vera bendlaður við þessi spillingarmál í The Laundromat þá verður myndinni vart breytt úr þessu,“ skrifar Sigurður Ingi Jóhannsson, en mynd af honum bregður fyrir í kvikmyndinni The Laundromat þar sem fjallað er um Panama-skjölin. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, segir það sárt og óþolandi að hafa verið bendlaður við spillingarmál í kvikmyndinni The Laundromat, sem fram­leidd er af streym­isveit­unni Net­flix og var gef­in út í gær.

Sigurði Inga bregður fyrir í kvik­mynd­inni Þvotta­húsið (The Laun­drom­at), sem …
Sigurði Inga bregður fyrir í kvik­mynd­inni Þvotta­húsið (The Laun­drom­at), sem fram­leidd er af streym­isveit­unni Net­flix og var gef­in út í gær. Skjáskot/Netflix

Í einu atriði í myndinni birtist frétt úr miðlin­um Time þar sem sagt er frá því að Sig­mund­ur Gunn­laugs­son, formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hafi sagt af sér embætti for­sæt­is­ráðherra Íslands eft­ir að hafa verið af­hjúpaður í lek­an­um. Sam­flokksmaður hans, Sig­urður Ingi Jó­hanns­son, hafi tekið við. Eng­in mynd birt­ist af Sig­mundi, en mynd af Sig­urði Inga fær að njóta sín á stærst­um hluta skjás­ins.

Sigurður Ingi hefur tjáð sig um myndbirtinguna á Facebook. „Eins og mér þykir það sárt og óþolandi að vera bendlaður við þessi spillingarmál í The Laundromat þá verður myndinni vart breytt úr þessu,“ skrifar hann meðal annars. 

Þá þakkar hann þeim sem hafa haft samband fyrir hlýhug og traust. Sigurður Ingi veit einnig til þess að sumir hafi að eigin frumkvæði skrifað Netflix og kvartað yfir rangri framsetningu. 

Sigurður Ingi segir falsfréttar orðnar vandamál á tækni- og upplýsingaöld. „Það er áskorun fyrir fjölmiðlaheiminn og framleiðendur efnis að hafa sannleikann ávallt að leiðarljósi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert