Yfir þúsund reglugerðir felldar brott

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Þórdís Kolbrún R. …
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, segja íslenskt regluverk verða að vera aðgengilegt og auðskiljanlegt. mbl.is/Kristinn Magnússon

Iðnaðarleyfi og leyfi til sölu notaðra bif­reiða verður lagt niður og afnema á skrán­ing­ar­skyldu versl­ana og versl­un­ar­rekst­urs, auk þess sem yfir þúsund reglugerða á sviði sjávarútvegs og landbúnaðar verða felldar brott. Þetta er meðal til­lagna sem fram koma í aðgerðaáætl­un um ein­föld­un reglu­verks sem kynntar voru í at­vinnu­vega- og ný­sköp­un­ar­ráðuneyt­inu í morgun. 

Fram kom í máli Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, að íslenskt regluverk verði að vera aðgengilegt og auðskiljanlegt. 

100 eldri reglugerðir verða að átta nýjum

Kristján Þór hefur fellt brott 1.090 reglugerðir á sviði sjávarútvegs og landbúnaðar. Breytingarnar eru liður í einföldun regluverks sem er forgangsverkefni í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, að því er segir í tilkynningu. 

Verkefnið er unnið í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem kveðið er á um að gert verði átak í einföldun regluverks í þágu atvinnulífs og almennings og lögð áhersla á skilvirka og réttláta stjórnsýslu.  

Einföldunin er meðal annars gerð með því að uppfæra, sameina og fella brott reglugerðir, þannig að rúmlega 100 eldri reglugerðir á sviði sjávarútvegs verða að átta nýjum. Einnig er um að ræða reglugerðahreinsun sem fellir brott tímabundnar reglugerðir sem hafa ekki lengur gildi. Auk þess falla brott reglugerðir sem meðal annars hafa verið settar með stoð í lögum sem þegar hafa verið felld úr gildi. 

„Með því að fella þessar reglugerðir brott er verið að  hreinsa til í regluverkinu á sviði landbúnaðar og sjávarútvegs. Þar með er öllum þeim sem þurfa að fylgja því auðveldað að sjá í gegnum skóginn,“ er haft eftir Kristjáni Þór í tilkynningu. Á næstunni verður unnið að enn frekari einföldun regluverks.

Aðgerðirnar eru liður í fyrsta áfanga aðgerðaáætlunar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til næstu þriggja ára sem lýtur að einföldun regluverks.

Einföldunin er meðal annars gerð með því að uppfæra, sameina …
Einföldunin er meðal annars gerð með því að uppfæra, sameina og fella brott reglugerðir, þannig að rúmlega 100 eldri reglugerðir á sviði sjávarútvegs verða að átta nýjum. mbl.is/Sigurður Bogi

Áformaðar lagabreytingar í samráðsgátt

Þórdís Kolbrún segir meginverkefni ráðuneytanna vera að horfa gagnrýnum augum á þær reglur sem hafa verið settar og fækka þeim eins og mögulegt er. „Slík einföldun regluverks stuðlar að aukinni verðmætasköpun, meiri skilvirkni, meiri samkeppni, lægra verði og þar með betri lífskjörum. Hér höfum við svo sannarlega verk að vinna,“ er haft eftir Þórdísi í tilkynningu. 

Lagafrumvarp hennar um breytingar á ýmsum lögum til einföldundar regluverks er nú í samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpið er fyrsti áfangi af þremur í aðgerðaráætlun ráðuneytisins um einföldun regluverks á þessum málefnasviðum sem ráðgert er að standi yfir fram á mitt ár 2021.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem fela í sér að skráningum verslana verði hætt, iðnaðarleyfi og leyfi til sölu notaðra ökutækja verði lögð af, ráðherra fái heimild til að framselja vald til að veita undanþágur á grundvelli laga um samvinnufélög, auk annarra atriða sem horfa til einföldunar. Loks er lagt til í frumvarpinu brottfall 16 úreltra laga sem ekki hafa sérstakt gildi lengur.

Aðgerðirnar eru liður í fyrsta áfanga aðgerðaáætlunar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra …
Aðgerðirnar eru liður í fyrsta áfanga aðgerðaáætlunar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til næstu þriggja ára sem lýtur að einföldun regluverks. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert