Curio hlaut Nýsköpunarverðlaunin

Fulltrúar Curio tóku við verðlaununum með bros á vör.
Fulltrúar Curio tóku við verðlaununum með bros á vör. Ljósmynd/Aðsend

Curio hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands árið 2019 en Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir nýsköpunarráðherra afhenti verðlaunin á Nýsköpunarþingi í gær.

Curio er nýsköpunarfyrirtæki sem vinnur að þróun fiskvinnsluvéla sem auka nýtingu og skila betri afurð í vinnslu á bolfiski í afhausun, flökun og roðflettingu, ásamt því að hafa öryggismál og þrif að leiðarljósi.

Fyrstu vélar undir vörumerkinu Curio voru framleiddar af Gullmolum ehf. árið 2007 og var fyrirtækið Curio ehf. stofnað árið 2013 og tók yfir þróun og framleiðslu vélanna. 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Ljósmynd/Aðsend

Félagið selur 85% af vélum sínum á erlendan markað og þá helst í Noregi, Bretlandi, Bandaríkjunum, Frakklandi og Póllandi. Þróunarstarf félagsins hefur skilað sér í nýjum og áhugaverðum vinnsluvélum, sem hafa skilað félaginu mikilli veltuaukningu á undanförnum árum. Síðari ár hefur félagið lagt sífellt meiri áherslu á þróunarstarf og eru starfsmenn félagsins að vinna að þróun á nýrri vélalínu fyrir lax og bleikju.

Í rök­stuðningi dóm­nefnd­ar seg­ir:

Curio hefur leitt öflugt þróunarstarf sem snýr að vinnslu sjávarafurða. Félagið var framan af ekki áberandi í nýsköpunarsamfélaginu en þróunarstarf félagsins hefur vaxið jafnt og þétt undanfarin ár. Félagið hlaut m.a. árið 2018 tveggja milljón evra styrk í nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins innan Horizon 2020 og styrk frá Tækniþróunarsjóði vorið 2019 fyrir nýrri tölvustýrðri klumbruskurðarvél. 

Það er mat dómnefndar að Curio hafi þróað framúrskarandi afurðir og leggi mikla áherslu á áframhaldandi þróun véla sem hafi alla burði til að ná árangri á markaði á næstu árum og sé vel að verðlaununum komið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert