Siðferðileg gildi stuðli að skarpari sýn

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, á vinnufundi …
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, á vinnufundi um Heilbrigðisþing sem fram fer í næsta mánuði. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hyggst leggja fyrir Alþingi í vor tillögu til þingsályktunar um siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu. Undirbúningur að mótun tillögunnar hófst formlega með fjölmennum vinnufundi sem Svandís efndi til í liðinni viku. 

„Þessari vinnu er ætlað að stuðla að skarpari sýn á grundvöll heilbrigðisþjónustunnar og má benda á að víða á Norðurlöndunum hefur verið ráðist í svipaða vinnu með aðkomu almennings, heilbrigðisstétta og þings,“ er haft eftir ráðherra í tilkynningu

Heilbrigðisþing 2019 sem haldið verður 15. nóvember næstkomandi verður helgað þessu viðfangsefni og var vinnufundurinn haldinn til að leggja grunn að umfjöllun þingsins svo það verði sem árangursríkast. 

Ólafur Þór Gunnarsson, þingmaður Vinstri grænna, á vinnufundi sem heilbrigðisráðherra …
Ólafur Þór Gunnarsson, þingmaður Vinstri grænna, á vinnufundi sem heilbrigðisráðherra efndi til í síðustu viku þar sem fjallað var um siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Hátt í sextíu manns tóku þátt í vinnufundinum, flestir úr hópi stjórnenda og fagfólks frá stofnunum heilbrigðisráðuneytisins en einnig fulltrúar frá háskólasamfélaginu og fleiri aðilar. Fundurinn hófst með ávarpi Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra sem ræddi um þörfina fyrir skýr viðmið fyrir forgangsröðun í heilbrigðisþjónustunni sem sátt sé um í samfélaginu.

Að loknu ávarpi heilbrigðisráðherra fór Vilhjálmur Árnason heimspekingur yfir niðurstöður nefndar um forgangsröðun í heilbrigðismálum frá árinu 1998 og ræddi hvers vegna þörf væri á endurskoðun, Hildigunnur Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri við Sjúkrahúsið á Akureyri og Tryggvi Þorgeirsson læknir fjölluðu um forgangsröðun í fjárveitingum og Páll Matthíasson forstjóri Landspítala, Tinna Laufey Ásgeirsdóttir heilsuhagfræðingur og Henry Alexander Henrysson heimspekingur ræddu um heilbrigðisþjónustu út frá sjónarmiðum þarfa, hagkvæmni og hugsjóna. 

Á næstu vikum verður unnið að því að vinna frekar úr niðurstöðum vinnudagsins og gera hann aðgengilegan til frekari umfjöllunar á heilbrigðisþinginu 15. nóvember næstkomandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert