Eldri borgarar með meiri áhyggjur af orkupakkanum

Frá fundi utanríkismálanefndar Alþingis frá því í vor þar sem …
Frá fundi utanríkismálanefndar Alþingis frá því í vor þar sem þriðji orkupakkinn var til umræðu. mbl.is/Eggert

Helmingur landsmanna (50%) kvaðst hafa litlar áhyggjur af áhrifum þriðja orkupakka ESB á hagsmuni þjóðarinnar en um þriðjungur (34%) kvaðst hafa miklar áhyggjur. Þetta er ein af niðurstöðum könnunar MMR um áhyggjur Íslendinga af áhrifum þriðja orkupakkans á hagsmuni þjóðarinnar.

Könnunin var framkvæmd dagana 9. — 16. september. Úrtakið voru einstaklingar 18 ára og eldri handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR. 1045 svöruðu könnuninni.

Alls kváðust 22% hafa mjög miklar áhyggjur af áhrifum þriðja orkupakkans, 12% kváðust hafa frekar miklar áhyggjur, 16% bæði/og, 17% frekar litlar áhyggjur og 33% mjög litlar eða engar áhyggjur.

Karlar (55%) reyndust líklegri heldur en konur (43%) til að segjast hafa litlar áhyggjur af áhrifum þriðja orkupakkans á hagsmuni þjóðarinnar en 41% karla sagðist hafa mjög litlar eða engar áhyggjur, samanborið við 23% kvenna. Þá kváðust 27% kvenna hafa mjög miklar áhyggjur af áhrifum orkupakkans en 19% karla.

Svarendur í elsta aldurshópnum (67 ára og eldri) voru líklegri en svarendur annarra aldurshópa til að segjast hafa miklar áhyggjur af áhrifum innleiðingar orkupakkans (41%) en 34% þeirra sögðust hafa mjög miklar áhyggjur. Svarendur yngsta aldurshópsins (18-29 ára) reyndust hins vegar líklegastir allra aldurshópa til að segjast hafa litlar áhyggjur (55%) en 41% þeirra kvaðst hafa mjög litlar eða engar áhyggjur.

Þá reyndust svarendur búsettir á höfuðborgarsvæðinu líklegri til að segjast hafa litlar áhyggjur af áhrifum pakkans á hagsmuni þjóðarinnar (55%) heldur en íbúar landsbyggðarinnar (40%) en 37% höfuðborgarbúa kváðust hafa mjög litlar eða engar áhyggjur. Þá kváðust 28% landsbyggðarbúa hafa mjög miklar áhyggjur, samanborið við 19% þeirra af höfuðborgarsvæðinu.

Ef litið er til stjórnmálaskoðana má sjá að skiptar skoðanir voru á meðal stuðningsfólks ríkisstjórnarflokkanna. Alls kváðust 68% stuðningsfólks Vinstri-grænna hafa litlar áhyggjur af áhrifum innleiðingar þriðja orkupakkans, samanborið við 59% stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins og 51% stuðningsfólks Framsóknar. Þá reyndist rúmur helmingur stuðningsfólks Vinstri-grænna (51%) hafa mjög litlar eða engar áhyggjur. Áhyggjurnar reyndust meiri hjá stuðningsfólki Framsóknar heldur en hjá stuðningsfólki hinna ríkisstjórnarflokkanna en 36% þeirra kváðust hafa miklar áhyggjur, samanborið við 17% stuðningsfólks Vinstri-grænna og 20% stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins.

Af stuðningsfólki stjórnarandstöðuflokkanna reyndist stuðningsfólk Samfylkingar (82%) og Viðreisnar (83%) líklegast til að segjast hafa litlar áhyggjur af áhrifum þriðja orkupakkans en stuðningsfólk Miðflokks ólíklegast (4%). Þá kváðust 90% stuðningsfólks Miðflokksins hafa miklar áhyggjur af áhrifum orkupakkans á þjóðarhagsmuni en alls kváðust 72% hafa mjög miklar áhyggjur.

Þá voru þeir sem kváðust fylgjandi inngöngu Íslands í ESB (80%) líklegri til að segjast hafa litlar áhyggjur en þau sem kváðust andvíg inngöngu í ESB (29%) en um tveir af hverjum þremur Evrópusinnum (67%) kváðust hafa mjög litlar eða engar áhyggjur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert