Hefja rannsókn á verklagi ráðherra vegna ábendinga FATF

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundaði í morgun og samþykkti tillögu um …
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundaði í morgun og samþykkti tillögu um að hefja skoðun á verklagi ráðherra vegna ábendinga FATF. Mynd úr safni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis samþykkti á fundi sínum nú fyrir skömmu að hefja frumkvæðisrannsókn á verklagi ráðherra vegna ábendinga framkvæmdahóps FATF vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þetta staðfestir Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar og flutningsmaður tillögunnar, í samtali við mbl.is.

„Þetta var samþykkt og það var samstaða í nefndinni um að ráðast í þetta og það er mjög gott,“ segir Jón Steindór.

Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar og nefndarmaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, …
Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar og nefndarmaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, lagði tillöguna fram.

Tillagan var lögð fram á fundi nefndarinnar á mánudaginn síðastliðinn en því var frestað að taka hana til efnismeðferðar þar sem í henni þurfti að útlista nánar hvernig athugun nefndarinnar mun fara fram. Það var gert og hún tekin til efnismeðferðar í morgun.

„Það ligg­ur fyr­ir að við erum kom­in á grá­an lista FATF og höf­um verið að fá at­huga­semd­ir frá þess­ari nefnd frá ár­inu 2006 og hug­ur nefnd­ar­inn­ar stend­ur til að skoða hvernig það gat gerst að við erum kom­in á þenn­an gráa lista og hvernig verklag ráðherra hefði mátt bet­ur fara svo við get­um lært af þessu í framtíðinni,“ sagði Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata og nefndarformaður, í samtali við mbl.is á mánudaginn.

Ætlað að leiða í ljós brotalamir í vinnubrögðum ráðherra

Markmið rannsóknarinnar er að leiða í ljós hvort og þá hvaða brotalamir megi finna í vinnubrögðum þeirra ráðherra, ráðuneyta og stofnana sem bera ábyrgð á samskiptum við FATF ásamt nauðsynlegum breytingum á lögum, reglum og öðrum ráðstöfunum til þess að tryggja rétta framkvæmd og eftirlit sem fullnægir tilmælum FATF.

„Mikilvægt er að draga lærdóm af málinu og greina hvað fór úrskeiðis og hverjir bera ábyrgð á því. Aðeins þannig  er hægt að draga úr líkum þess að ágallar í verklagi, ábyrgð, úrvinnslu og eftirfylgni í málum af þessu tagi geti endurtekið sig.“

„Lagt er til að SEN afli allra þeirra gagna sem nefndin telur nauðsynleg til þess að rannsaka málið og kalla til sín alla þá gesti sem hún telur að geti varpað ljósi á málavöxtu. Það gildir um ráðherra, ráðuneyti, stofnanir og aðra sem komið hafa að málinu með einhverjum hætti,“ segir í tillögunni. 

Að gagnaöflun lokinni mun gagnaúrvinnsla og frekari rannsókn hefjast. Stefnt er að því að ljúka þessari vinnu á „næstu mánuðum.“

Tillagan í heild:

„Markmið og verklag frumkvæðisrannsóknar

Samkvæmt 2. mgr. 8. tölul. 1. mgr. 13. gr. þingskapa skal stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hafa frumkvæði að því að kanna ákvarðanir einstakra ráðherra eða verklag þeirra sem ástæða þykir til að athuga á grundvelli þess eftirlitshlutverks sem Alþingi hefur gagnvart framkvæmdarvaldinu. Í sama ákvæði er kveðið á um að komi beiðni um slíka athugun frá a.m.k. fjórðungi nefndarmanna skal hún fara fram.

Þann 18. október sl. ákvað FATF (The Financial Action Task Force) á fundi sínum í París að setja Ísland á svokallaðan gráan lista ásamt Mongólíu og Zimbabwe. Í því felst það mat FATF að löggjöf og skipulag varna gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka sé ekki fullnægjandi.

Undirritaður telur fullt tilefni til þess að SEN hefji frumkvæðisrannsókn á því hvaða atburðarás, athafnir eða athafnaleysi hafa leitt til þess að Ísland hafnar á þessum lista.

Markmiðið rannsóknarinnar er að leiða í ljós hvort og hvaða brotlamir er að finna í vinnubrögðum þeirra ráðherra, ráðuneyta og stofnana sem bera ábyrgð á samskiptum við FATF ásamt nauðsynlegum breytingum á lögum, reglum og öðrum ráðstöfunum til þess að tryggja rétta framkvæmd og eftirlit sem fullnægir tilmælum FATF. Einkum verði horft til framvindunnar frá og með fyrstu matsskýrslu FATF um Ísland árið 2006 til og með fullnustu ábendinga og tilmæla í skýrslu FATF frá því í apríl 2018, áfangaskýrslu frá því 6. september 2019 og ákvörðunar FATF frá 18. október 2019.  

Mikilvægt er að draga lærdóm af málinu og greina hvað fór úrskeiðis og hverjir bera ábyrgð á því. Aðeins þannig  er hægt að draga úr líkum þess að ágallar í verklagi, ábyrgð, úrvinnslu og eftirfylgni í málum af þessu tagi geti endurtekið sig.

Lagt er til að SEN afli allra þeirra gagna sem nefndin telur nauðsynleg til þess að rannsaka málið og kalla til sín alla þá gesti sem hún telur að geti varpað ljósi á málavöxtu. Það gildir um ráðherra, ráðuneyti, stofnanir og aðra sem komið hafa að málinu með einhverjum hætti.

Lagt er til að SEN hefji gagnaöflun þegar í stað til þess að fá yfirlit yfir tímalínu málsins allt frá því að Ísland gerðist aðili að FATF, en þó með sérstakri áherslu á úttektir og tilmæli sem varða Ísland, efni þeirra og viðbrögð við þeim. Sömuleiðis að fá yfirlit yfir þá aðila sem hlut eiga að máli í íslensku stjórnkerfi, ábyrgð, verkaskiptingu, verkferla og þess háttar.

Að gagnaöflun lokinni hefst úrvinnsla, frekari rannsókn og mat nefndarinnar á þessum gögnum. Stefnt skal að því að þessari vinnu SEN ljúki á næstu mánuðum og þá verða teknar ákvarðanir um framhaldið.

Lagt er til að SEN taki ákvörðun um hvort ástæða sé til að skipa sérstaka undirnefnd til þess að vinna að málinu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert