Urð og Grjót átti lægsta tilboðið

mbl.is/Styrmir Kári

Tilboð í jarðvegsframkvæmdir vegna nýbyggingar Alþingis við Vonarstræti voru opnuð hjá Ríkiskaupum í fyrradag. Fjögur tilboð bárust frá innlendum fyrirtækjum.

Urð og Grjót ehf. átti lægsta tilboðið, 51 milljón. Ístak hf. bauð 55,2 milljónir, Eykt ehf. 66 milljónir og ÍAV hf. 77,1 milljón. Kostnaðaráætlun var 71 milljón króna.

Tilboðin verða yfirfarin af Framkvæmdasýslu ríkisins og í framhaldinu verður ákvörðun tekin um hvaða tilboði verður tekið. Áætlað er að jarðvegsframkvæmdir hefjist í nóvember.

Nú er verið að fara yfir tilboð á vinnu við að setja steinklæðningu á ytra byrði byggingarinnar. Útboð fyrir vinnu við aðalbygginguna og tengiganga verða auglýst í júní 2020 og er gert ráð fyrir að uppsteypa byggingarinnar hefjist í september sama ár. Verklok eru áætluð í mars árið 2023.

Alþingisreiturinn svonefndi er á milli Kirkjustrætis, Vonarstrætis og Tjarnargötu. Í nýbyggingunni verða m.a. skrifstofur þingmanna, aðstaða þingflokka, nefnda og starfsmanna þeirra. Byggingin verður um 6.000 fermetrar og í fjármálaáætlun eru áætlaðir 4,4 milljarðar króna til verkefnisins í heild. sisi@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert