Aðstaða verður bætt við Glanna og Paradísarlaut

Á vorin er hægt að sjá laxa reyna sig við …
Á vorin er hægt að sjá laxa reyna sig við fossinn á leið upp ána. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Umhverfisráðuneytið hefur samið við Borgarbyggð um framkvæmdir við bílastæði og salernishús við fossinn Glanna og gróðurvinina Paradísarlaut í Norðurárdal í Borgarfirði.

Ríkið ver 13 milljónum kr. til verkefnisins á rúmum tveimur árum, í samræmi við landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.

Glanni er fallegur foss í Norðurá. Skammt frá er Paradísarlaut í Grábrókarhrauni, gróðurvin með vatnslindum, í landi Hreðavatns. Eru þessar náttúruminjar á jaðri svæðis á náttúruminjaskrá og vinsæll áfangastaður ferðafólks. Ferðafólki sem þangað leggur leið sína hefur fjölgað mjög á undanförnum árum, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert