Flokkur fólksins kominn í 8%

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins. Flokkurinn á stærsta stökkið upp …
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins. Flokkurinn á stærsta stökkið upp á við í nýrri könnun MMR. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fylgi Flokks fólksins mælist nú 8% samkvæmt nýrri könnun MMR á fylgi stjórnmálaflokka og jókst það um tvö prósentustig frá síðustu könnun. Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram stærstur og nú með 21,1% fylgi og hækkar úr 19,8% í síðustu könnun. Stuðningur við ríkisstjórnina mælist 42,2% og hækkar um 0,2 prósentustig.

Næst þar á eftir mælast Samfylkingin með 15,3% og Miðflokkurinn með 13,5%.

Framsóknarflokkurinn stendur næstum í stað og færist úr 10,1% niður í 10% milli kannana. Viðreisn lækkar úr 11% í 10% og Vinstri græn mælast í 9,7%, en voru í 10,3% í síðustu könnun.

Fylgi Pírata mælist 8,9% nú en var í síðustu könnun 8,8%.

Flokkur fólksins á stærsta stökkið milli kannana, en fylgi flokksins fer úr 5,6% í síðustu könnun í 8% nú.

Sósíalistaflokkur Íslands mælist með 2,6% og lækkar úr 3,1% en fylgi annarra flokka mælist 0,9% samanlagt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert