SA boðið kjarabætur sem samrýmast launastefnu Lífskjarasamninganna

Samtök atvinnulífsins hafa gert samningstilboðið opinbert.
Samtök atvinnulífsins hafa gert samningstilboðið opinbert. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

„Samtök atvinnulífsins hafa boðið blaðamönnum kjarabætur sem samrýmast að fullu þeirri launastefnu sem mörkuð var með Lífskjarasamningnum og nú þegar hefur verið samið um við yfir 95% launafólks á almennum vinnumarkaði auk fimm stéttarfélaga innan BHM hjá ríkinu. Fullur vilji hefur verið hjá SA til að leiða viðræðurnar til lykta.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins. 

Samtök atvinnulífsins birtu samningstilboð sitt til Blaðamannafélags Íslands (BÍ) í yfirstandandi kjaraviðræðum aðilanna. SA óskaði eftir því á sáttafundi í morgun og var það samþykkt. 

„Þar með geta félagsmenn BÍ kynnt sér tilboðið áður en atkvæðagreiðsla um verkfall hefst. Samtök atvinnulífsins telja það mjög mikilvægt og árétta að grundvöllur tilboðsins til BÍ er Lífskjarasamningurinn og þær hækkanir sem felast í honum.“ Segir ennfremur í tilkynningu. 

Kosið verður um verkfallsboðun á morgun. „Verkföll valda alltaf tjóni og skerða getu fyrirtækja í erfiðu árferði til að standa undir kjarabótum til starfsmanna. Öllum má vera ljóst að verkfall mun ekki auka svigrúm fjölmiðla til hækkunar launakostnaðar.“

SA bendir á að „yfirgnæfandi meirihluti launafólks og atvinnurekenda á almennum vinnumarkaði hefur samþykkt Lífskjarasamninginn í atkvæðagreiðslum.“

Hér er hægt að skoða tilboð SA til BÍ

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert