Neyðarkall ársins er drónakall

Hagnaður af sölu Neyðarkallsins rennur beint til björgunarsveita og verður …
Hagnaður af sölu Neyðarkallsins rennur beint til björgunarsveita og verður notaður til að efla búnað og styrkja þjálfun björgunarsveitarmanna landsins, en rekstur björgunarsveitanna er dýr þrátt fyrir að allir björgunarsveitamenn séu sjálfboðaliðar. mbl.is/Eggert

Landssöfnun björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Neyðarkall björgunarsveitanna, hefst í dag og stendur yfir til 3. nóvember. Næstu daga mun björgunarsveitafólk standa vaktina á fjölförnum stöðum og selja Neyðarkallinn, sem í ár er björgunarsveitarmaður með dróna.

Í fréttatilkynningu frá Landsbjörg segir að drónar, eða flygildi, hafi reynst björgunarsveitum vel í verkefnum sínum undanfarin ár og að fleiri og fleiri sveitir hafi tekið þá í notkun. Margar björgunarsveitir eru nú með hópa af sjálfboðaliðum sem sérhæfa sig í notkun dróna við leit að fólki.

Neyðarkall ársins er í líki björgunarsveitarmanns með dróna.
Neyðarkall ársins er í líki björgunarsveitarmanns með dróna.

Hagnaður af sölu Neyðarkallsins rennur beint til björgunarsveita og verður notaður til að efla búnað og styrkja þjálfun björgunarsveitarmanna landsins, en rekstur björgunarsveitanna er dýr þrátt fyrir að allir björgunarsveitamenn séu sjálfboðaliðar.

„Þjálfa þarf björgunarsveitarfólk, tæki og tól verða að vera tiltæk og í góðu lagi, húsnæði þarf undir búnað og olíu á tækin. Fjármagns er aflað með ýmsum hætti; sölu flugelda, dósasöfnun, gæsluverkefnum, jólatréssölu og ýmsu öðru, og nú með átakinu Neyðarkall frá björgunarsveitum.

Við vonum að landsmenn taki meðlimum björgunarsveitanna opnum örmum og styðji þannig við bakið á fórnfúsu starfi þeirra þúsunda björgunarsveitarmanna sem eru til taks allan ársins hring þegar samborgarar þeirra þurfa á aðstoð að halda,“ segir í tilkynningu frá Landsbjörg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert