Segir nauðsynlegt að efla varaflugvellina

Hann segir að skorið hafi verið niður til varaflugvalla síðan …
Hann segir að skorið hafi verið niður til varaflugvalla síðan árið 2011 en á sama tíma hafi millilandaflug „belgst út“. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þetta er auðvitað mjög alvarlegt mál,“ segir Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um það þegar flugmaður Icelandair lýsti yfir neyðarástandi þegar hann var að koma inn til lendingar á Keflavíkurflugvelli snemma á mánudagsmorgun.

Lítil einkaþota sem sinnir sjúkraflugi hafði runnið út af flug­braut­inni með átta manns innanborðs og hafnað í kanti við enda henn­ar. Hin flug­braut Kefla­vík­ur­flug­vall­ar var lokuð tíma­bundið vegna ís­ing­ar og því átti að senda flug­vél Icelanda­ir á Reykja­vík­ur­flug­völl sem var vara­flug­völl­ur í flugáætl­un vélarinnar.

Hins vegar var Reykjavíkurflugvöllur lokaður en hann er lokaður allri umferð frá kl. 23 að kvöldi til kl. 7 að morgni alla virka daga og frá kl. 23 að kvöldi til kl. 8 að morgni um helg­ar sam­kvæmt starfs­leyfi Heil­brigðis­eft­ir­lits Reykja­vík­ur­borg­ar.

Njáll Trausti, sem var formaður starfshóps um framtíð innanlandsflugs og var flugumferðarstjóri á Akureyrarflugvelli áður en hann tók sæti á Alþingi 2016, segir að stórefla þurfi varaflugvelli fyr­ir milli­landa­flug í Reykja­vík, á Ak­ur­eyri og á Eg­ils­stöðum.

Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hann segir að skorið hafi verið niður til varaflugvalla síðan árið 2011 en á sama tíma hafi millilandaflug „belgst út“, eins og Njáll orðar það. 

Njáll bendir á að hann hafi skilað skýrslu í desember undir heitinu „Uppbygging flugvallakerfisins og efling innanlandsflugsins sem almenningssamgangna“. Þar hafi meðal annars verið bent á að millilandaflugvellirnir í Keflavík, Reykjavík, Akureyri og á Egilsstöðum yrðu skilgreindir sem kerfi með sameiginlegum kostnaðargrunni og Isavia falin fjárhagsleg ábyrgð á rekstri, viðhaldi og uppbyggingu þeirra.

„Á sama tíma og umferð um Keflavíkurflugvöll hefur margfaldast frá 2010 hefur uppbygging varaflugvalla setið eftir,“ segir Njáll. Hann bendir á að sinna þurfi ýmsum framkvæmdum á varaflugvöllunum í Reykjavík, Akureyri og á Egilsstöðum en til þess þurfi aukið fjármagn til flugvallanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert