Tíu læknar hafa sagt upp störfum á Reykjalundi

Tíu læknar hafa sagt upp störfum frá því í sumar. …
Tíu læknar hafa sagt upp störfum frá því í sumar. Allir sálfræðingar, níu talsins, íhuga að gera slíkt hið sama. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alls hafa tíu læknar sagt upp störfum á Reykjalundi frá því í sumar. Níu af þeim sögðu upp nýverið vegna óánægju með með afskipti SÍBS af rekstri Reykjalundar en einn sagði upp í sumar af ótengdum ástæðum. Vonast er til þess að einhverjir læknanna muni endurskoða afstöðu sína. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjalundi sem barst nú fyrir skömmu.

Embætti landlæknis og Sjúkratryggingar Íslands hafa á síðustu dögum óskað eftir upplýsingum og gögnum frá Reykjalundi vegna stöðunnar upp er komin á stofnuninni.

Starf forstjóra auglýst um helgina

„Stjórnendur Reykjalundar hafa nú svarað spurningum þeim sem stofnuninni bárust með bréfum frá Sjúkratryggingum Íslands annars vegar og Embætti landlæknis hins vegar. Þá hefur SÍBS í vikunni uppfyllt skilyrðin sem Herdís Gunnarsdóttir setti þegar hún tók tímabundið að sér starf forstjóra Reykjalundar. Skilyrðin voru í fyrsta lagi að starf forstjóra yrði auglýst strax og í öðru lagi að stjórn SÍBS skipti sér ekki af daglegum rekstri Reykjalundar,“ segir í tilkynningunni frá Reykjalundi.

Starf forstjóra verður auglýst um helgina og sérstök hæfisnefnd mun annast ráðningu hans. Ný þriggja manna starfsstjórn mun taka til starfa á Reykjalundi og vinna tillögur um rekstrargrundvöll Reykjalundar í framtíðinni.

„Markmiðið er að með þessum aðgerðum megi með öruggum skrefum lægja öldurnar á Reykjalundi og bregðast við óskum sem fram hafa komið um aukið sjálfstæði starfseminnar til framtíðar.“

Ekki er búist við því að þörf verði á að draga úr innköllunum eða skerða þjónustu við sjúklinga á næstunni að mati stjórnenda Reykjalundar sem eru tilbúnir að eiga fundi með öllum faghópum heilbrigðisstarfsmanna á Reykjalundi.

Tilkynning frá Reykjalundi í heild:

„Stjórnendur Reykjalundar hafa nú svarað spurningum þeim sem stofnuninni bárust með bréfum frá Sjúkratryggingum Íslands annars vegar og Embætti landlæknis hins vegar.

Þá hefur SÍBS í vikunni uppfyllt skilyrðin sem Herdís Gunnarsdóttir setti þegar hún tók tímabundið að sér starf forstjóra Reykjalundar. Skilyrðin voru í fyrsta lagi að starf forstjóra yrði auglýst strax og í öðru lagi að stjórn SÍBS skipti sér ekki af daglegum rekstri Reykjalundar.

Nú liggur fyrir að starf forstjóra verði auglýst um helgina og sérstök hæfisnefnd muni annast ráðningu hans. Þá mun ný þriggja manna starfsstjórn yfir Reykjalund taka til starfa og vinna tillögur um rekstrargrundvöll Reykjalundar til framtíðar. 

Markmiðið er að með þessum aðgerðum megi með öruggum skrefum lægja öldurnar á Reykjalundi og bregðast við óskum sem fram hafa komið um aukið sjálfstæði starfseminnar til framtíðar.

Í ítarlegum svörum við bréfum Embættis Landlæknis og Sjúkratrygginga Íslands kemur fram að níu læknar hafi sagt upp störfum sérstaklega í tengslum við þau mál sem komið hafa upp á Reykjalundi að undanförnu. Tíundi læknirinn hafði sagt upp í sumar af ótengdum ástæðum. Hluti læknanna, sem sagt hafa upp, hyggst vinna á uppsagnarfresti. Leitast verður við að manna störfin með góðum fyrirvara en jafnframt er vonast til þess að einhverjir læknanna muni endurskoða afstöðu sína.

Einnig kom fram í svarbréfum Reykjalundar til Sjúkratrygginga og Embættis landlæknis að ekki sé búist við því að þörf verði á að draga úr innköllunum eða skerða þjónustu við sjúklinga á næstunni. Þá kom fram að stjórnendur séu búnir að eiga fundi með öllum faghópum heilbrigðisstarfsmanna á Reykjalundi. Enn eigi eftir að ræða við nokkra hópa annarra starfsmanna. Tilgangur fundanna hefur verið upplýsingamiðlun og að fara yfir mönnunarmál.

Sérstök verkefnaáætlun hefur verið sett af stað innanhúss í kringum brýnustu verkefni næstu vikna. Þá hafa starfsmenn verið skipaðir í vinnuhópa um faglega þjónustu og þjónustusamning Reykjalundar annars vegar og stjórnun og skipulag stofnunarinnar hins vegar. Vonast er til að sú vinna muni ganga hratt og vel.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert