Einn í haldi vegna eldsvoða

Húsið sem kviknaði í á Akureyri í nótt var byggt …
Húsið sem kviknaði í á Akureyri í nótt var byggt árið 1898. Ljósmynd/Þröstur Kristinsson

Einn er í haldi lögreglunnar á Norðurlandi eystra eftir að eldur kom upp í húsi í Sand­gerðis­bót­inni á Ak­ur­eyri um hálft­vö í nótt. Að sögn Jónasar Halldórs Sigurðssonar rannsóknarlögreglumanns var hann handtekinn í nótt og bíður yfirheyrslu. Að öðru leyti geti lögreglan ekki tjáð sig um málið.

Íbúi á jarðhæðinni, þar sem eldurinn kom upp, var nýfarinn að heiman þegar nágrannar hans á efri hæðinni, karl og kona, urðu eldsins vör og tilkynntu til Neyðarlínu. Þau komust út úr húsinu af sjálfsdáðum og hvorugt þeirra slasaðist í eldsvoðanum, að sögn Jónasar.

Um gam­alt hús í eigu bæj­ar­ins er að ræða en það var byggt árið 1898, og búa þar skjól­stæðing­ar Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Húsið er á tveim­ur hæðum auk kjall­ara. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert