Hefðu ekki átt að losa landfestar

Mynd úr öryggismyndavél sýnir atvikið er Eldey rakst utan í …
Mynd úr öryggismyndavél sýnir atvikið er Eldey rakst utan í danska varðskipið Hvidbjørnen. Skemmdir urðu á báðum skipunum. Ljósmynd/Úr skýrslu RNS

Lokaskýrsla sjóslysasviðs Rannsóknarnefndar samgönguslysa vegna ásiglingar hvalaskoðunarskipsins Eldeyjar á danska varðskipið Hvidbjørnen í Reykjavíkurhöfn fyrir ári var afgreidd á fundi nefndarinnar á föstudag.

Í áliti nefndarinnar segir að ekki hefði átt að sleppa landfestum Eldeyjar meðan verið var að taka 135 metra langt herskip inn í höfnina.

„Nefndin hvetur stjórnendur farþega- og hvalaskoðunarskipa að kynna sér vel umferð innan hafnarinnar og taka tillit til hennar áður en farið er af stað eða við komur til að tryggja öryggi skipsins,“ segir í álitinu.

Skemmdir á báðum skipum

Landfestum Eldeyjar var sleppt klukkan níu að morgni 18. október í fyrra, en skipið lá utan á öðru skipi við Ægisgarð. Skömmu eftir að skipið var laust lenti það með bakborðssíðu utan í danska varðskipinu Hvidbjørnen sem lá við Ægisgarð, segir í skýrslu RNS. 116 farþegar voru um borð í Eldey og fjórir skipverjar.

Talsverðar skemmdir urðu á Eldey þar sem tveir gluggar brotnuðu og pósturinn á milli þeirra gekk aðeins inn. Einn farþegi um borð í Eldey skarst á glerbroti. Rekkverk á skut Hvidbjörnen bognaði, að því er fram kemur í Morgublaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert