Met í útflutningi fiskeldisafurða

Mikið var flutt út af laxi í október.
Mikið var flutt út af laxi í október. mbl.is/Helgi Bjarnason

Samkvæmt tölum frá Hagstofunni stefnir í að útflutningur í október á afurðum frá fiskeldi á Íslandi verði sá mesti í einum mánuði og verði í kringum þrír milljarðar króna.

Þetta kemur fram í frétt frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Stærsti mánuðurinn hingað til var janúar á þessu ári, þegar eldisafurðir voru fluttar út fyrir 2,4 milljarða króna.

Þetta má lesa úr bráðabirgðatölum Hagstofunnar, en í þeim tölum er ekki ítarleg sundurliðun á útflutningi, einungis birtar tölur fyrir yfirflokkana eins og landbúnaðarafurðir í heild þar sem eldisfiskur flokkast undir. Það er mat SFS að líklega hafi útflutningur á hefðbundnum landbúnaðarafurðum, fiskeldi undanskilið, verið í kringum einn milljarður króna í mánuðinum. Hagstofan birtir frekari sundurliðun á tölunum fyrir október í lok nóvember.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert