Stormviðvörun á Suðvesturlandi

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna storms við Faxaflóa og á Suðurlandi. Búast má við allt að 40 metrum á sekúndu en í nótt og í fyrramálið hvessir af suðaustri, einkum um landið suðvestanvert. Viðvaranir taka gildi klukkan 16 á morgun.

Síðdegis á morgun má búast við að vindur verði almennt 13-20 m/s og 18-23 á stöku stað. Vindhviður við fjöll geti náð 40 m/s. Lítil úrkoma samhliða þessu þannig að aðallega þarf að huga að hlutum sem geta fokið eða taka á sig mikinn vind.

„Í dag má búast við éljum um vestanvert landið og þegar líður á daginn verða élin einkum bundin við norðvesturhluta landsins. Annars staðar verður þurrt að kalla og bjart veður á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti að 5 stigum við suður- og vesturströndina en annars frost. Gengur í suðaustanstorm suðvestan til á morgun en annars víða 8-15 m/s. Dálítil úrkoma um landið sunnanvert en þurrt í öðrum landshlutum. Heldur hlýnandi í bili, einkum sunnan- og vestanlands,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurhorfur í dag og næstu daga

Suðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og dálítil él á víð og dreif, einkum á Vesturlandi og síðar NV-til, en léttskýjað norðaustan- og austanlands. Bætir í vind vestast í kvöld. Frostlaust að deginum við suður- og vesturströndina, annars frost 0 til 10 stig, kaldast fyrir norðan.
Gengur í suðaustanhvassviðri eða -storm um landið SV-vert á morgun, en mun hægari N- og A-lands. Sums staðar dálítil úrkoma sunnan til, en bjartviðri fyrir norðan. Hiti 0 til 5 stig S- og V-til, en annars vægt frost.

Á föstudag:
Gengur í suðaustan og austan 15-23 m/s á sunnanverðu landinu með rigningu eða slyddu á láglendi. Hiti 1 til 5 stig. Hægari vindur norðan til, þurrt og minnkandi frost.

Á laugardag:
Austan 10-18 m/s, hvassast á Suðausturlandi. Rigning eða slydda á láglendi á suðurhelmingi landsins, en hægari og þurrt á norðanverðu landinu. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost norðanlands.

Á sunnudag:
Ákveðin suðaustanátt og rigning eða slydda með köflum, en þurrt um N-vert landið. Heldur hlýnandi.

Á mánudag:
Suðlæg átt og úrkoma, einkum SA-til. Hiti nálægt frostmarki.

Á þriðjudag:
Suðlæg átt, úrkoma af og til syðra, en þurrt fyrir norðan og austan. Hiti breytist lítið.

Á miðvikudag:
Útlit fyrir austlæga átt með úrkomu um mestallt land. Fremur svalt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert