Bresk flugsveit kemur til landsins

Þota á vegum NATO tekur á loft í Keflavík.
Þota á vegum NATO tekur á loft í Keflavík. mbl.is/Þórður

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins (NATO) við Ísland hefst að nýju með komu flugsveitar breska flughersins til Íslands í næstu viku.

Allt að 140 liðsmenn breska flughersins taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með fjórar Eurofighter Typhoon Orrustuþotur.

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslu Íslands er gert ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 12. nóvember til 18. nóvember. Loftrýmisgæslan verður í samræmi við loftrýmisáætlun NATO fyrir Ísland og fyrirkomulagið verður með sama hætti og verið hefur.

Flugsveitin hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og er gert ráð fyrir að verkefninu ljúki í byrjun desember.

Landhelgisgæsla Íslands annast verkefnið í samvinnu við Isavia.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert