Lætur af störfum á Reykjalundi

Ólafur Þór Ævarsson hefur ákveðið að láta af störfum sem framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hann sendi fjölmiðlum.

Fram kemur að þegar hann sótti um starfið hafi hann verið metinn vel hæfur af tveimur hæfnisnefndum. Hann hafi ekki verið þátttakandi í þeim deilum sem hafi risið á staðnum en þær hafi engu að síður valdið honum miklum áhyggjum og gert honum erfitt að starfa.

„Niðurstaðan mín er því sú að best sé að ég láti af störfum á Reykjalundi. Ég óska þess að það geti orðið þáttur í því að stuðla að sátt til framtíðar og að mikilvæg starfsemi Reykjalundar fái að blómstra áfram sjúklingum til heilsubótar,“ segir í tilkynningunni.

Stutt er síðan Magdalena Ásgeirsdóttir, formaður læknaráðs Reykjalundar, sagði að Ólafur Þór þyrfti að víkja úr starfi. Fyrr myndu læknar á stofnuninni ekki afturkalla uppsagnir sínar.

Ólafur Þór Ævarsson.
Ólafur Þór Ævarsson. Ljósmynd/Aðsend

Tilkynning Ólafs Þórs í heild sinni:

„Ég sótti nýverið um starf framkvæmdastjóra lækninga á Reykjalundi og eftir að hafa verið metinn vel hæfur af tveimur hæfnisnefndum, en önnur þeirra var á vegum Landlæknis, var mér boðið starfið sem ég þáði. Ég hóf störf fyrir aðeins rúmlega hálfum mánuði. 

Ég réði mig til starfa á Reykjalund því ég hafði sterka löngun til að gera gagn og taka þátt í því glæsilega starfi sem þar fer fram. Í krafti fyrri reynslu minnar á þessu sviði sá ég mikla möguleika til framtíðar í þróun endurhæfingar - ekki síst hvað varðar geðræna líðan og álagsveikindi. 

Ég hef ekki á neinn hátt verið þátttakandi í þeim deilum sem hafa risið á staðnum. Þær hafa engu að síður valdið mér miklum áhyggjum og gert mér erfitt að starfa.  Vonir mínar um að geta við þessar aðstæður tekið þátt í að leiða starfsemina inn í framtíðina hafa dvínað. 

Niðurstaðan mín er því sú að best sé að ég láti af störfum á Reykjalundi. Ég óska þess að það geti orðið þáttur í því að stuðla að sátt til framtíðar og að mikilvæg starfsemi Reykjalundar fái að blómstra áfram sjúklingum til heilsubótar.

Ég óska starfsfólki Reykjalundar og þeim sem taka nú við stjórn starfseminnar velfarnaðar og velgengni í þeirra mikilvægu verkefnum. 

Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert