Rannsaka starfsemi Samherja í Afríku

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja. mbl.is/​Hari

Samherji hefur ráðið alþjóðlegu lögmannsstofuna Wikborg Rein í Noregi til að framkvæma ítarlega rannsókn á starfsemi fyrirtækisins í Afríku. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Samherja.

Fram kemur að fyrirtækið hafi orðið þess áskynja að fyrrverandi stjórnandi Samherja í Namibíu, Jóhannes Stefánsson, hafi farið til fjölmiðla og lagt fram alvarlegar ásakanir á hendur núverandi og fyrrverandi stjórnendum Samherja. Þessu taki fyrirtækið mjög alvarlega. Það muni ekki tjá sig um einstaka ásakanir fyrr en niðurstöður liggja fyrir um rannsóknina á starfseminni í Afríku.

„Við höfum sérstaklega óskað eftir að fá að setjast niður með Ríkisútvarpinu og fara yfir upplýsingar sem við teljum skipta máli í tengslum við fyrirhugaða umfjöllun. Þeirri beiðni hefur jafnharðan verið hafnað og hefur Ríkisútvarpið aðeins talið sér fært að ræða við okkur fyrir framan myndavélar. Teljum við þær upplýsingar sem við búum yfir vera með þeim hætti að slíkt væri tillitslaust vegna hagsmuna þeirra einstaklinga sem málið varðar,“ segir í tilkynningunni.

„Öll starfsemi Samherja og tengdra félaga var undir ítarlegri rannsókn árum saman án þess að nokkuð athugavert hafi fundist. Var allt okkar bókhald, tölvupóstar og öll önnur gögn skoðuð ítarlega, þar með talið þeirra félaga sem sinntu útgerð við strendur Afríku frá árinu 2007. Við munum ekki nú, frekar en þá, sitja undir röngum og villandi ásökunum frá fyrrverandi starfsmanni sem enn á ný eru matreiddar af sömu aðilum og fjölmiðlum og í Seðlabankamálinu,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, í tilkynningunni.  

Fram kemur í tilkynningunni að þegar Samherji varð þess áskynja í byrjun ársins 2016 að ekki væri allt með felldu í rekstrinum í Namibíu hafi fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður hjá sérstökum saksóknara verið sendur til Namibíu.

„Eftir nokkurra mánaða vinnu hans var niðurstaðan að segja umræddum starfsmanni upp störfum án tafar vegna óásættanlegrar framgöngu hans og hegðunar. Mikill tími hefur farið í að ná tökum á rekstrinum en starfsmaðurinn fyrrverandi hefur samhliða, beint og ásamt samstarfsmönnum sínum, krafist hárra fjárhæða frá Samherja.“

Fram kemur einnig að Samherji hafi lagt sig fram um að vinna í samræmi við lög og reglur sem gildi í þeim löndum sem félagið starfar í. Unnið hafi verið náið með stjórnvöldum í Namibíu, bæði skattayfirvöldum og seðlabanka landsins.  

„Má þar nefna að frá síðari hluta árs 2016 hefur öllum virðisaukaskattskyldum fyrirtækjum í Namibíu verið skylt að fara í gegnum  ítarlega skoðun hjá skattyfirvöldum á tveggja mánaða fresti þar sem allir reikningar eru yfirfarnir. Á það við um okkar félög eins og öll önnur fyrirtæki í Namibíu,“ segir í tilkynningunni.

„Frá því að við hófum starfsemi í Namibíu hefur legið fyrir að um tímabundinn rekstur sé að ræða. Gerðir voru samningar við ýmsa kvótahafa, allt frá samningum til örfárra mánaða til fimm ára en umræddir samningar eru nú allir útrunnir. Þá hafa namibísk stjórnvöld unnið að breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu á undanförnum árum með það fyrir augum að draga úr notkun frystitogara og auka vægi landvinnslu ásamt því að leggja aukna áherslu á að eignarhald og stjórnun sé í höndum innlendra aðila. Í því skyni hefur eitt skip þegar verið selt og viðræður staðið yfir frá byrjun þessa árs um sölu á öðrum rekstri Samherja í Namibíu til þarlendra aðila.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert