Álverið er komið á fullt

Álverið í Straumsvík.
Álverið í Straumsvík. mbl.is/Árni Sæberg

Endurræsingu þriðja kerskálans í álverinu í Straumsvík er lokið töluvert á undan áætlun en þegar hún hófst í september var rætt um að hún gæti tekið nokkra mánuði.

Bjarni Már Gylfason, upplýsingafulltrúi Rio Tinto á Íslandi, segir enduræsinguna hafa gengið vonum framar og hraðar en áætlað var.

Fram kom í ársuppgjöri Rio Tinto að vegna óhappsins myndi framleiðslan í Straumsvík dragast saman um 21 þúsund tonn í ár. Til samanburðar var framleiðslugetan áætluð 213 þúsund tonn í ár.

Stóðu við allar skuldbindingar

Í umfjöllun um mál þetta í  Morgunblaðinu í dag segir Bjarni Már álverið hafa afgreitt allar pantanir síðan óhappið kom upp. „Viðskiptavinir okkar hafa ekki fundið fyrir þessu og við höfum getað staðið við allar skuldbindingar gagnvart þeim.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert