Allt í steypu í miðborginni á laugardag

Frá framkvæmdum við Austurbakka.
Frá framkvæmdum við Austurbakka. mbl.is/Hari

Botnplata nýju Landsbankabyggingarinnar á Austurbakka 2 verður steypt laugardaginn 16. nóvember og hefst vinnan um nóttina. Verkið er umfangsmikið og verður umferð steypubíla áberandi, en þeir þurfa að koma 190 ferðir í miðborgina. 

Gefin hefur verið heimild til þessarar vinnu frá kl. 02.00 – 24.00 og meðan unnið er þarf að loka hægri akrein Kalkofnsvegar í átt að Lækjargötu, að því er fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Einnig verður mynduð tvístefna á um 100 metra kafla við gatnamót Kalkofnsvegar og Geirsgötu.

Nánar má lesa um þrengingar og lokanir vegna vinnunnar hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert