Fleiri hliðar á máli Samherja

Þorsteinn Már Baldvinsson hefur vikið tímabundið sem forstjóri Samherja.
Þorsteinn Már Baldvinsson hefur vikið tímabundið sem forstjóri Samherja. skjáskot úr viðtali Vísis

Fleiri hliðar eru á máli Samherja í Namibíu en hafa komið fram í umfjöllun fjölmiðla á síðustu dögum. Þetta sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, við fréttamenn Vísir.is í dag. Hann benti enn fremur á að þær fullyrðingar að Samherji hafi flutt milljarða frá Afríku væru ekki á rökum reistar. 

Þorsteinn tók fram að vonir stæðu til að innri rannsókn Samherja myndi leiða sannleikann í ljós. Rekstraryfirlit yfir starfsemi Samherja í Namibíu verður birt fljótlega en ekki liggur fyrir nákvæmlega hvenær það verður til upplýsingar fyrir almenning. 

Spurður um meintar mútugreiðslur til namibískra embættismanna, peninga í skattaskjólum o.s.frv. vildi hann litið tjá sig og vísaði til rannsóknar norsku lögmannsstofunnar Wikborg Rein sem þyrfti að skoða það.  

Þorsteinn sagðist enn fremur hvorki óttast ákærur né fangelsun leiddi rannsókn málsins til slíks.  

Þorsteinn Már og Björgólfur Jóhannsson, settur forstjóri Samherja, funduðu með starfsfólki Samherja á Akureyri í dag. Á fundinum var meðal annars greint frá því að Björgólfur tæki við sæti forstjóra á meðan öldurnar lægði.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert