Sól í dag en rok og rigning á morgun

Svona verður veðrið í fyrramálið.
Svona verður veðrið í fyrramálið. Kort/Veðurstofa Íslands

Íbúar á Suður- og Vesturlandi eiga í vændum sólríkan dag en það gengur í suðaustanhvassviðri eða -storm sunnan og vestan til á landinu seint í nótt og í fyrramálið með talsverðri úrkomu.

„Norðvestan 5-10 og dálítil él norðaustan til á landinu fram eftir degi, en lægir síðan og léttir til. Sólríkur dagur fram undan sunnan og vestan til á landinu og hægur vindur en skil nálgast landið úr suðvestri og mun blika frá skilunum smám saman færast yfir landið. Gengur í suðaustanhvassviðri eða -storm sunnan og vestan til á landinu seint í nótt með slyddu og síðar rigningu og sums staðar má búast við talsverðri úrkomu. Dregur síðan úr vindi en heldur áfram að rigna um sinn en síðan styttir að mestu upp með suðvestanátt, en bætir í vind og úrkomu fyrir austan. Frost um mestallt land í dag, en hlýnar síðan smám saman og hiti 0 til 7 stig síðdegis á morgun. Á laugardag er útlit fyrir dæmigerða suðvestanátt með dálitlum snjó- eða slydduéljum sunnan- og vestanlands, en björtu veðri norðaustan til á landinu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurspá fyrir daginn í dag og næstu daga

Norðlæg átt, 5-10 m/s, en hægari breytileg átt um landið vestanvert. Víða léttskýjað, en él á norðaustanverðu landinu fram yfir hádegi. Lægir og léttir til norðaustanlands í kvöld, en vaxandi suðaustanátt og þykknar upp suðvestanlands. Suðaustan 15-23 og rigning eða slydda sunnan og vestan til seint í nótt og á morgun, en sums staðar talsverð úrkoma. Hægari og úrkomulítið norðan- og austanlands. Snýst í suðvestan 8-13 með stöku éljum seint á morgun, fyrst vestan til, en bætir í vind og úrkomu austanlands. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum, en hlýnar á morgun, hiti 0 til 7 stig síðdegis.

Á föstudag:
Hvöss sunnanátt og rigning eða slydda, einkum S- og V-lands. Hiti yfirleitt 0 til 6 stig. Snýst í hægari suðvestanátt með éljum um landið vestanvert síðdegis og kólnar.

Á laugardag:
Suðvestan 8-13 m/s og él, en hægari og léttskýjað um landið A-vert. Frost 0 til 7 stig, en yfirleitt frostlaust við suðvesturströndina.

Á sunnudag:
Hæg vestlæg átt og léttskýjað, en skýjað með köflum V-lands. Snýst í vaxandi suðaustanátt suðvestan til um kvöldið. Frost 0 til 10 stig, kaldast á NA- og A-landi.

Á mánudag:
Ákveðin suðaustanátt og úrkomulítið, en hægari og bjart um landið norðaustanvert. Hlýnar lítið eitt.

Á þriðjudag og miðvikudag:
Útlit fyrir austan- og norðaustanátt. Víða él, en þurrt að mestu um landið suðvestanvert. Hiti kringum frostmark.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert