1.500 rúmmetrar af steypu

50 steypubílar frá BM Vallá fara 190 ferðir í grunninn …
50 steypubílar frá BM Vallá fara 190 ferðir í grunninn með steypu í dag. mbl.is/Hari

Umfangsmikil steypuvinna í grunni nýja Landsbankans við Austurbakka 2, við Hörpu, hófst í nótt hjá starfsmönnum ÞG-verktaka. Í botnplötu byggingarinnar fara um 1.500 rúmmetrar af steypu og í verkið verða notaðir 50 steypubílar frá BM Vallá, sem munu fara 190 ferðir í grunninn.

Hægri akgrein Kalkofnsvegar í átt að Lækjargötu er lokuð vegna …
Hægri akgrein Kalkofnsvegar í átt að Lækjargötu er lokuð vegna framkvæmdanna. mbl.is/Hari

Vegna framkvæmdanna hefur verktakinn fengið heimild Reykjavíkurborgar til að loka hægri akgrein Kalkofnsvegar í átt að Lækjargötu. Einnig verður mynduð tvístefna á um 100 metra kafla við gatnamót Kalkofnsvegar og Geirsgötu. Til stóð að hefja steypuvinnuna klukkan fjögur í nótt og reiknað er með hún standi yfir til miðnættis í kvöld. Það er því vissara fyrir ökumenn að velja sér aðrar leiðir um miðbæinn.

Steypubílar losa steypu í grunn Landsbankans.
Steypubílar losa steypu í grunn Landsbankans. mbl.is/Hari
Botnplata Landsbankans steypt.
Botnplata Landsbankans steypt. mbl.is/Hari
mbl.is/Hari
Steypubílar frá BM Vallá.
Steypubílar frá BM Vallá. mbl.is/Hari
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert