Íþróttahús ÍR-inga tekið að rísa

Fjölnota íþróttahús ÍR-inga er nú óðum að rísa í Mjóddinni. Þar verður hálfur knattspyrnuvöllur og aðstaða fyrir æfingar í frjálsum íþróttum en húsið verður um 4.300 fermetrar en í 1.300 fermetra hliðarbyggingu verða m.a. búningsklefar og aðstaða til lyftinga.  

Á vef Reykjavíkurborgar er gert ráð fyrir að kostnaður við byggingarnar verði um 1,2 milljarðar og samkvæmt áætlunum verður það tekið í notkun snemma á næsta ári. Byggingafyrirtækið Munck er framkvæmdaraðili. 

Samkvæmt samningi við ÍR stendur til að byggja íþróttahús með parketgólfi við byggingarnar það verður þó ekki gert í þessum áfanga en undirbúningsvinna mun vera hafin. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert