Vináttan er alltaf í fyrsta sæti

Harry söngvari og gítarleikari, Jack trommari og Charles bassaleikari og …
Harry söngvari og gítarleikari, Jack trommari og Charles bassaleikari og bakraddasöngvari.

„Jú, þakka þér fyrir, ég hef það bara gott og það er ágætisveður hér úti í Bretlandi þótt vissulega sé farið að kólna, ég fann það á eigin skinni þegar ég fór út að hlaupa í morgun. Mér finnst nauðsynlegt að fara út á hverjum degi og hreyfa mig, hvort sem ég er hér heima í London eða að túra með hljómsveitinni,“ sagði Jack Lawrence-Brown, trommari bresku hljómsveitarinnar White Lies, þegar blaðamaður sló á þráðinn og spurði hvernig hann hefði það og hvort veturinn væri kominn hjá honum. Hljómsveitin White Lies er á leið til Íslands til að halda tónleika í Hörpu í desember, en tilefnið er að fagna því að tíu ár eru liðin frá því sveitin sendi frá sér sína fyrstu plötu, To lose my life. Ætla þeir félagar að flytja plötuna í heild sinni á tónleikunum, en hún sló rækilega í gegn á sínum tíma og leiðin hefur legið upp á við hjá þeim piltum allar götur síðan og nýlega sendu þeir frá sér sína fimmtu plötu, Five.

Við elskum allir Ísland

„Við erum allir mjög spenntir að koma aftur til Íslands til að spila fyrir ykkur og tókum því fagnandi þegar félagi okkar Guðbjartur Finnbjörnsson viðburðastjóri hafði samband og spurði hvort við hefðum áhuga á að vera með tónleika á Íslandi. Okkur fannst þetta svo gott tækifæri að við gátum ekki látið það fram hjá okkur fara. Okkur finnst stórkostlegt að fá að halda lokatónleikana okkar í Evróputúrnum á Íslandi, því við spiluðum á Iceland Airwaves fyrir ellefu árum og það var æðislegt. Ég get lofað að þetta verða miklu betri tónleikar núna,“ segir Jack og bætir við að þeir félagarnir í White Lies elski Ísland.

„Við erum allir miklir aðdáendur landsins og við Charles höfum báðir komið í frí til Íslands frá því við vorum þar fyrir ellefu árum. Því miður getum við ekki ferðast um landið í þetta sinn, því við þurfum að mæta í brúðkaup hjá vini okkar í Bretlandi tveimur dögum eftir Íslandstónleikana, en vonandi höfum við tíma til að skreppa í bæinn og kíkja á lífið eitt kvöld.“

Jack minnir á að íslenska hljómsveitin Kontinuum muni hita upp fyrir þá á tónleikunum í Hörpu.

„Okkur finnst það frábært og virkilega gaman að geta gefið íslensku bandi tækifæri í stað þess að taka breskt upphitunarband með okkur til Íslands.“

Jack segir að tónninn í tónlistinni hjá White Lies hafi þróast svolítið frá einni plötu til annarrar, en það sé svo margt við lögin þeirra sem geri það að verkum að í þeim verði alltaf þessi ákveðni White Lies-tónn.

„Meðal annars vegna þess að rödd söngvarans, Harrys, er mjög sérstök og það mun ekki breytast að hún einkenni lögin okkar, en annað er breytilegt, eins og til dæmis hvort við leggjum meiri áherslu á gítarhljóm, notum hljóðgervil eða eitthvað annað í lögunum. Það sem er nýtt við fimmtu og nýjustu plötuna okkar, Five, er að við vorum ekki með einhverja heildarhugmynd fyrirfram um hvernig hún ætti að vera. Hvert lag er sjálfstætt og ekki hugsað sem hluti af heild.“

Eru bundnir sterkum böndum

Þegar Jack er spurður hvort það reyni ekki á vináttu þeirra félaga í hljómsveitinni að vinna svo náið saman sem raun ber vitni og vera saman á krefjandi tónleikaferðalögum segir hann svo ekki vera.

„Við erum kannski einstaka sinnum ekki alveg sammála og þá helst þegar við erum að taka upp í stúdíói, en það kastast afar sjaldan í kekki illi okkar á tónleikaferðalögum. Við erum orðnir harla góðir í þessu samspili, höfum slípast mjög vel saman með árunum. Auk þess kom vinátta okkar til áður en hljómsveitin varð til. Ég held það hafi einmitt verið kostur þegar við fórum að semja og spila saman tónlist, við vorum þá þegar búnir að hanga saman í gegnum mótandi unglingsárin okkar. Við ólumst nánast upp saman, vorum nágrannar, það er góður grunnur að samstarfi. Við erum allir frá sama svæðinu og erum bundnir sterkum böndum, svo það að vera saman í hljómsveit er í raun ágætis framlenging á vináttu okkar. Auðvitað náum við stundum þeim punkti þegar við erum þreyttir að verða pirraðir hver á öðrum, en það varir aldrei lengi og ristir ekki djúpt. Við höfum aldrei lent í alvarlegum langvarandi ágreiningi eins og gerist stundum hjá hljómsveitum þar sem liðsmenn verja svo miklum tíma saman sem raun ber vitni. Mér finnst afar ólíklegt að nokkuð slíkt gerist hjá okkur, af því hjá okkur er vináttan í fyrsta sæti en hljómsveitin í öðru sæti. Við erum nógu góðir vinir til að verja saman meiri hluta þess tíma sem við erum ekki að vinna í hljómsveitinni eða á tónleikaferðalögum.“

Gerum eitthvað öðruvísi

Fram undan hjá þeim félögum er að taka sér frí að lokinni þessari tónleikaferð sem endar á Íslandi.

„Jólin eru jú fram undan og áramótin, svo við ætlum að gefa okkur góðan tíma til að slaka á. Við erum búnir að bóka okkur eitthvað á nýja árinu en seinni hluta ársins förum við að sinna nýrri tónlistarsköpun og gera eitthvað öðruvísi, hvort sem það verður ný plata eða eitthvað annað. Það hefur verið meira en nóg að gera á þessu ári, æfingar, undirbúningur og tónleikaferðalög, svo mér finnst líklegt að við tökum það rólega næstu misseri.“

Tónleikarnir verða í Eldborgarsal Hörpu 9. desember. Miðasala á heimasíðunni harpa.is.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert