Dómsmálaráðherrann handtekinn

Sacky Shanghala, fráfarandi dómsmálaráðherra Namibíu (t.v.), ásamt Jóhannesi Stefánssyni, uppljóstrara …
Sacky Shanghala, fráfarandi dómsmálaráðherra Namibíu (t.v.), ásamt Jóhannesi Stefánssyni, uppljóstrara og þáverandi starfsmanni Samherja, árið 2014. Ljósmynd/Wikileaks

Fyrrverandi dómsmálaráðherra Namibíu, Sacky Shanghala, og James Hatuikulipi, fyrr­ver­andi stjórn­ar­formaður rík­is­út­gerðarfé­lags­ins Fis­hcor, voru handteknir á búgarði sínum klukkan 6 í morgun. 

Framkvæmdastjóri rannsóknar á spillingarmálum í Namibíu, Paulus Noa, staðfestir handtöku mannanna tveggja í samtali við The Namibian. Hann segir að frekari upplýsingar um málið verði veittar síðar. 

Handtökurnar tengjast fréttum af Fishrot-hneykslismálinu en þar er Samherji sakaður um að hafa greitt mútur til namibískra embættismanna. 

Auk tvímenninganna tengist fyrrverandi sjávarútvegsráðherra landsins, Benhardt Esau, málinu, tengdasonur Esau, Tamson „Fitty“ Hatuikulipi og sjóðstjórinn Ricardo Gustavo.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert