Gamlir skúrar víkja fyrir nýjum húsum

Mikil breyting verður á Ægisgarði þegar nýju húsin verða komin …
Mikil breyting verður á Ægisgarði þegar nýju húsin verða komin upp. Tölvumynd/Yrki arkitektar

Ægisgarður í Gömlu höfninni í Reykjavík er að taka stakkaskiptum. Skúrar sem sett hafa svip sinn á svæðið hafa verið fjarlægðir. Skúrarnir hafa verið aðsetur hvalaskoðunarfyrirtækja undanfarin ár.

Næsta sumar verður búið að koma fyrir nýjum söluhúsum á svæðinu, þar sem ferðamenn geta keypt sér miða í hvala- og lundaskoðunarferðir og aðrar slíkar ferðir. Þá hefur tækifærið verið notað til þess að endurnýja lagnir í jörðu.

Ægisgarður liggur í beinu framhaldi af Ægisgötu. Hann er austan Slippsins og hafa hvalbátar Hvals hf. haft viðlegu við Ægisgarð í áraraðir. Umferð erlendra ferðamanna hefur stóraukist á svæðinu undanfarin ár og tími kominn til að endurnýja það og fegra.

Faxaflóahafnir skrifuðu undir verksamning við E Sigurðsson ehf. þann 15. maí 2019. Samningsupphæðin er tæplega 400 milljónir. E. Sigurðsson er að smíða söluhúsin og sér fyrirtækið um allt verkið, þ.m talið jarðvinnuna við Ægisgarð. Verkinu á að ljúka 30. apríl 2020, að því er fram kemur í umfjöllun um framkvæmd þessa í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert