Ríkið láni fyrir hluta útborgunar

Ásmundur Einar á Húsnæðisþingi.
Ásmundur Einar á Húsnæðisþingi. Ljósmynd/Aðsend

Fyrirhugað er að ríkið láni ákveðnum kaupendahópum að íbúð fé fyrir hluta af útborguninni. Þetta segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, sem boðar frumvarp um svonefnd hlutdeildarlán að breskri fyrirmynd. Hann segir að frumvarpið, þar sem ríkið getur lánað tekju- og eignalitlum fyrir meirihluta útborgunar í húsnæði, verði lagt fram á Alþingi í vetur.

Ásmundur Einar fór yfir stöðu mála á Húsnæðisþingi félagsmálaráðuneytisins og Íbúðalánasjóðs sem haldið er í dag, og sérstaklega könnun Íbúðalánasjóðs sem sýnir að meirihluti leigjenda vill kaupa sína eigin fasteign, að því er segir í tilkynningu. Vísaði hann þá til fyrstu kaupa og sagði að þessu fólki mættu töluverðar hindranir, einkum varðandi útborgun við kaup.

Hann sagði að könnuð hefðu verið bæði svonefnd startlán að norskri fyrirmynd og einnig hlutdeildarlánin (e. Equity loans).

„Slík hlutdeildarlán eða eiginfjárlán eiga að brúa bilið fyrir þá sem eiga þess ekki kost að safna sér fyrir útborgun í íbúð.  Ríkið lánar ákveðnum kaupendahópum fé fyrir hluta af útborguninni og fær það svo endurgreitt við sölu eignarinnar eða þegar kaupandinn endurfjármagnar lánið,“ sagði Ásmundur Einar.

Hann bætti því við að framkvæmdin hjá Bretum hefði verið skoðuð ítarlega. Ætla má að þessi lán gætu numið 20-40 prósentum af kaupverði íbúðar.

„Raunhæft dæmi er ef íbúð kostar til dæmis 30 milljónir, þarf kaupandi að leggja sjálfur fram um eina og hálfa milljón í eigið fé, ríkið myndi lána 6 milljónir og eftirstöðvarnar fjármagnaðar með óverðtryggðu húsnæðisláni, frá fjármálastofnun. Þegar eignin verður seld fær ríkið lánið endurgreitt og svarar endurgreiðslan þá til sama hlutfalls af verðmæti eignarinnar og upphaflega lánið. Hafi eignin hækkað í verði hækkar greiðsla til ríkisins en hafi eignin lækkað verður greiðsla til ríkisins að sama skapi lægri,“ sagði hann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert