Loftslagssjóður stjórnvalda kynntur — beint streymi

Nýr Loftslagssjóður stjórnvalda er kynntur á fundi í Norræna húsinu …
Nýr Loftslagssjóður stjórnvalda er kynntur á fundi í Norræna húsinu í hádeginu. Mynd frá loftslagsverkfalli grunnskólabarna fyrr á árinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kynningarfundur um Loftslagssjóð fer fram í Norræna húsinu í hádeginu í dag og í kjölfarið verður opnað fyrir umsóknir í sjóðinn. Stofnun Loftslagssjóðs er ein af aðgerðum í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum.

Loftslagssjóður er nýr samkeppnissjóður sem heyrir undir umhverfis- og auðlindaráðherra og hefur ráðherra falið Rannís umsjón með honum. Hlutverk sjóðsins er að styðja við nýsköpunarverkefni á sviði loftslagsmála og verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga. Styrkir eru meðal annars ætlaðir til þess að styrkja rannsóknir og þróunarstarf í tengslum við innleiðingu á nýjum loftslagsvænum tæknilausnum og hönnun.

Kynningarfundur um sjóðinn stendur yfir frá kl. 12:00 til 13:00. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, heldur ávarp, Hildur Knútsdóttir formaður stjórnar Loftslagssjóðs fer yfir áherslur stjórnar og Ása Guðrún Kristjánsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís, fer yfir handbók sjóðsins, umsóknarkerfi og faglegt matsferli.

Hægt er að fylgjast með fundinum í beinu streymi hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert