Nýtt íþróttahús ÍR tekur á sig mynd í Mjódd

Nýtt Íþróttahús ÍR rís í Mjódd.
Nýtt Íþróttahús ÍR rís í Mjódd. mbl.is/​Hari

Framkvæmdir standa nú yfir við nýtt fjölnota íþróttahús ÍR í Mjódd og var stálgrind þess reist á dögunum. Nýja húsið mun bæta íþróttaaðstöðuna í Breiðholti til muna.

Húsið verður rúmir 4.300 fermetrar að stærð og samanstendur af fjölnota íþróttasal sem er á stærð við hálfan knattspyrnuvöll auk æfingasvæðis fyrir frjálsar íþróttir.

Hliðarbygging verður tæpir 1.300 fermetrar. Áætlaður kostnaður er 1,2 milljarðar króna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert