Veitti manni um fimmtugt á vespu eftirför

Maðurinn ók frá Skeifunni að Kringlunni á vespunni.
Maðurinn ók frá Skeifunni að Kringlunni á vespunni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Lögreglan veitti manni á vespu eftirför í nótt frá Skeifunni og að Kringlunni því hann neitaði að stöðva ökutækið að beiðni lögreglunnar. Ökumaðurinn missti stjórn á hjólinu, rann í hálku og datt. Ökumaðurinn var hjálmlaus og fékk sár á höfuðið og var honum  ekið á Bráðadeild til aðhlynningar. Ökumaðurinn var ekki unglingur heldur maður sem nálgast óðfluga fimmta tuginn. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. 

Maðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og fjölda umferðarlagabrota til að mynda að aka tvisvar sinnum gegn rauðu ljósi, akstur gegn einstefnu, ekið eftir gangstéttum / göngustígum o.fl. 

Hjólið var óskráð og ótryggt, Hjólið var fært á lögreglustöð þar sem ekki er vitað um eiganda.  Maðurinn var laus aða lokinni töku sýna og upplýsinga.  

Lögreglan þurfti að hafa afskipti af nokkrum ökumönnum víðsvegar um borgina vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Bílstjóri einnar slíkar bifreiðar var stöðvar vegna akstur undir áhrifum í Vesturbænum og var málið tilkynnt til Barnaverndar því ökumaðurinn var 17 ára. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert