Öllum breytingatillögum Sjálfstæðisflokks hafnað

Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn.
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn. mbl.is/Eggert

Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, segir að frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2020, sem samþykkt var á fundi í dag, sýni að skuldir hækki stöðugt þvert á það sem standi í meirihlutasáttmálanum þar sem segir að skuldir skuli greiddar niður á meðan efnahagsástandið sé gott.  

Auk þess var fimm ára fjárhagsáætlun borgarinnar samþykkt í kvöld.

Eyþór bendir á að áætlunin geri ráð fyrir að skuldir og skuldbindingar samstæðu Reykjavíkurborgar muni hækka verulega frá þeirri áætlun sem gerð var fyrir kosningarnar 2018 og er nú gert ráð fyrir að skuldir verði heilum 64 milljörðum hærri árið 2022.

„Sjálfstæðismenn lögðu fram fjölda breytingartillagna við fjárhagsáætlun fyrir þennan fund. Lagðar voru til skattalækkanir og hagræðing í stjórnkerfinu, auknir afslættir fasteignagjalda fyrir eldri borgara og öryrkja, sala eigna í samkeppnisrekstri og bætt jafnræði rekstraraðila í skólakerfinu. Þeim var öllum hafnað,“ sagði Eyþór í borgarstjórn þegar hann las upp bókun við málið.

Sú fjárhagsáætlun sem samþykkt hefur verið á þessum fundi er í raun skipbrot meirihlutasáttmálans sem gerður var eftir síðustu kosningar. Engin hagræðing er enda hækkar rekstrarkostnaður um 16% á aðeins tveimur árum. Skuldir vaxa hratt og verða 64 milljörðum hærri í lok kjörtímabils en fram kom í fimm ára fjárhagsáætlun sem lögð var fram fyrir kosningar,“ bætti Eyþór við.

Hann sagði enn fremur að skuldasöfnun borgarinnar væri langt umfram það sem reksturinn gæfi af sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert