ESA rannsakar meinta ríkisaðstoð

Gagnaveita Reykjavíkur er sjálfstætt fyrirtæki sem var stofnað til að …
Gagnaveita Reykjavíkur er sjálfstætt fyrirtæki sem var stofnað til að aðskilja samkeppnisrekstur á fjarskiptamarkaði frá öðrum rekstri OR.

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur ákveðið að hefja rannsókn á hugsanlegri ríkisaðstoð til Gagnaveitu Reykjavíkur (GR).

Stofnunin hefur haft málið til athugunar í kjölfar kvörtunar frá Símanum. Orkuveita Reykjavíkur (OR), sem er að fullu í eigu sveitarfélaga, hefur fjármagnað og veitt GR lán.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ESA.

Síminn heldur því fram að OR hafi veitt GR ívilnanir sem feli í sér brot á ríkisstyrkjareglum EES-samningsins. ESA mun rannsaka hvort opinberir fjármunir hafi verið nýttir til að veita GR ívilnanir sem stóðu öðrum aðilum á markaði ekki til boða.

Málið var tekið til athugunar eftir kvörtun frá Símanum.
Málið var tekið til athugunar eftir kvörtun frá Símanum. mbl.is/Hari

Ákvörðunin verður birt í ríkisaðstoðarskrá ESA um leið og trúnaðarupplýsingar hafa verið afmáðar úr ákvörðuninni, að því er segir í tilkynningunni. Venjulega á slík birting sér stað innan mánaðar frá töku ákvörðunar.

GR er sjálfstætt fyrirtæki sem var stofnað til að aðskilja samkeppnisrekstur á fjarskiptamarkaði frá öðrum rekstri OR.

Póst og fjarskiptastofnun (PFS) hefur eftirlit með því að samkeppnisrekstur á fjarskiptamarkaði sé ekki niðurgreiddur af einkaleyfis- eða verndaðri starfsemi. Slíkt getur skekkt samkeppni á markaði.

Í þremur ákvörðunum hefur PFS komist að þeirri niðurstöðu að ákveðnar ráðstafanir á milli OR og GR hafi brotið gegn umræddu skilyrði. Í tveimur málanna fór PFS fram á að OR sæi til þess að ráðstafanirnar gengju til baka. PFS fór ekki fram á endurgreiðslu vaxta vegna ívilnananna í neinu málanna, að því er greint er frá í tilkynningunni. 

ESA mun rannsaka hvort frekari endurheimtur séu nauðsynlegar til að tryggja að GR hafi ekki notið góðs af óæskilegum ívilnunum.

GR fagnar skoðun ESA

Fram kemur í tilkynningu frá Gagnaveitu Reykjavíkur að hún fagni því að ESA ætli að taka til frekari skoðunar þrjár ákvarðanir íslenskra stjórnvalda sem snerust allar um samskipti GR við eiganda þess, Orkuveitu Reykjavíkur, og vaxtakjör á lánsfjármagni.

„Niðurstaða ESA í málinu mun því hvorki hafa áhrif á viðskiptalíkan Gagnaveitu Reykjavíkur né uppbyggingaráform fyrirtækisins. Jafnvel þótt niðurstaða málsins kunni að verða GR í óhag telur fyrirtækið fjárhagsleg áhrif þess óveruleg,“ segir í tilkynningunni.

„Í öllum tilvikum varð GR við tilmælum stjórnvalda og telur að fjárhagsleg samskipti GR og eiganda þess séu í fullu samræmi við lög. Ákvörðun ESA sem birt er í dag felur ekki í sér endanlega niðurstöðu í málinu og gæti ESA að lokinni rannsókn komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé um að ræða ríkisaðstoð eða að ríkisaðstoðin sé í samræmi við EES-samninginn að hluta eða öllu leyti.“

Fram kemur að GR muni nú, eins og í málsmeðferðinni fyrir íslenskum yfirvöldum, senda greinargerð þar sem málavextir verða ítarlega raktir og rök fyrir því færð að fyrirtækið hafi starfað í samræmi við lög.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert