Kjaraskerðing lækna hlutfallslega lægri en margra stétta

Páll Matthíasson forstjóri Landspítala.
Páll Matthíasson forstjóri Landspítala. mbl.is/Kristinn Magnússon

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala, segir í vikulegum forstjórapistli sínum í dag að hann hafi skynjað almennan skilning á meðal lækna varðandi endurskoðun fastrar yfirvinnu á spítalanum, sem nú stendur yfir. Á því sé þó vissulega undantekningar.

Reynir Arngrímsson formaður Læknafélags Íslands steig fram í fjölmiðlum í gær og sagði lækna vilja fá svör frá spítalanum um það hvernig kjör annarra sem væru á fastri yfirvinnu myndu skerðast og þá helst hvernig föst yfirvinna hjá yfirstjórn spítalans myndi breytast í þeim aðhaldsaðgerðum sem nú standa yfir.

Páll fer yfir aðhaldsaðgerðirnar á Landspítala í pistli sínum í dag og segir ljóst að þegar launakostnaður sé ríflega 70% rekstarkostnaðar verði ekki komist hjá því að áhrifa gæti í launum starfsmanna, enda þótt ströng aðhaldskrafa sé á öðrum rekstrarliðum.

Leitast var við að samræma kjörin, að sögn Páls, sem nefnir að endurskoðun föstu yfirvinnunnar hafi leitt af sér einhverja kjaraskerðingu fyrir lækna, sem þó sé að meðaltali hlutfallslega lægri en margra annarra stétta.

„Upphaf aðgerðanna hélst í hendur við fækkun framkvæmdastjóra og lækkun launa þeirra og forstjóra um 5% eins og ég fjallaði um hér áður og ýmsir fjölmiðlar fluttu fréttir af. Þeim skipulagsbreytingum sem kynntar hafa verið hafa sömuleiðis fylgt sársaukafullar uppsagnir starfsfólks og tilflutningur í starfi. Einnig þurfti að grípa til þess óyndisúrræðis að fella niður hið vel heppnaða Hekluverkefni og vaktaálagsauka hjá hjúkrunarfræðingum enda hefur spítalinn ekki fjárhagslegt bolmagn til að standa undir greiðslum umfram kjarasamninga. Hins vegar leyfum við okkur að binda vonir við að horft verði til þessara leiða í yfirstandandi kjarasamningum. Endurskoðun fastrar yfirvinnu á spítalanum stendur yfir og nýlega var niðurstaða hennar kynnt hvað lækna varðar. Á síðasta ári nam föst yfirvinna lækna tæpum hálfum milljarði og við endurskoðunina nú var leitast við að samræma kjörin og þó að yfirleitt hafi endurskoðunin leitt af sér einhverja kjaraskerðingu var um hækkun að ræða í nokkrum tilvikum. Enda þótt kjaraskerðing þeirra sem aðgerðin nær til sé að meðaltali hlutfallslega lægri en margra annarra stétta sem tekið hafa á sig skerðingu er engum ánægja að verða fyrir slíku. Því hefur það verið gott að skynja almennan skilning á þessum aðgerðum meðal lækna, eins og annarra, þó að vissulega séu þar undantekningar á,“ skrifar Páll um þetta efni.

Þakkar starfsmönnum frábæran árangur

Páll skrifar einnig að starfsmannafundir innan spítalans í vikunni, þar sem hann hafi farið yfir fjárhagsstöðu, hagræðingaraðgerðir, skipulagsbreytingar og framtíðarsýn spítalans meðal annars, hafi verið mjög góðir að hans mati.

Hann segir að það sé eðlilegt að starfsfólki spítalans þyki að sér vegið þegar „aðilar fjær starfseminni“ virðist frekar sjá kostnað við þjónustuna spítalinn veitir, heldur en „hinn frábæra árangur“ sem náist á spítalanum á degi hverjum.

„Ágæt mynd til að hafa í huga, fyrir okkur sem starfsfólk spítalans en einnig sem skattgreiðendur, er sú sem hér fylgir um lækkaða dánartíðni helstu dánarmeina okkar Íslendinga, þar sem við spilum stærsta hlutverkið til árangurs. Fyrir þetta vil ég þakka ykkur öllum,“ skrifar forstjórinn og lætur með fylgja myndina sem sjá má hér að neðan.

Graf af vef Landspítala
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert