Bílvelta á Suðurnesjum

mbl.is/Eggert

Jepplingur valt austan við afleggjarann að Vogum á Vatnsleysuströnd laust fyrir klukkan 18 í kvöld.

Ökumaðurinn fer til athugunar á slysadeild en meiðsli hans eru talin minni háttar.

Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum er hálka á þessum slóðum og því um að gera fyrir ökumenn að fara varlega.

Bílinn verður dreginn í burtu af dráttarbifreið enda er hann ekki ökuhæfur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert