Helga fékk inngöngu í Bandarísku hjúkrunarakademíuna

Helga Bragadóttir prófessor.
Helga Bragadóttir prófessor. Ljósmynd/Aðsend

Helga Bragadóttir, hjúkrunarfræðingur, prófessor og forstöðumaður fræðasviðs í hjúkrunarstjórnun við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og Landspítala, hefur hlotið inngöngu í Bandarísku hjúkrunarakademíuna (American Academy of Nursing — AAN).

Hún er fjórði prófessorinn í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands sem fær inngöngu í akademíuna, en henni fylgir nafnbótin Fellow of the American Academy of Nursing (FAAN).

Áður höfðu prófessorarnir Ásta Steinunn Thoroddsen, Erla Kolbrún Svavarsdóttir og Helga Jónsdóttir hlotið inngöngu í AAN. Meðmælendur Helgu voru samstarfskonur hennar í Bandaríkjunum, Beatrice Kalisch, prófessor emeritus við University of Michigan, og Teddie Potter, prófessor við University of Minnesota, að því er fram kemur í tilkynningu frá Háskóla Íslands. 

Rannsóknir Helgu á sviði hjúkrunarstjórnunar hafa snúist um gæði og öryggi þjónustunnar, nýtingu tækni í heilbrigðisþjónustu, vinnu og vinnuumhverfi í hjúkrun. Síðustu 10 ár hefur Helga fyrst og fremst sinnt rannsóknum á gæðum hjúkrunar og teymisvinnu. Helga hefur haft umsjón með og kennt hjúkrunarstjórnun og forystu við Háskóla Íslands og á því sviði verið frumkvöðull í framsæknum kennsluaðferðum, svo sem nýtingu tækninnar og hnattrænni nálgun. Í öllum verkefnum sínum hefur Helga lagt áherslu á þverfræðilegt og alþjóðlegt samstarf og hefur hún leitt og tekið þátt í fjölmörgum verkefnum innan lands og utan sem hafa leitt til umbóta á vinnu og vinnuumhverfi í hjúkrun og heilbrigðisþjónustu og þar með þjónustu við sjúklinga, segir í tilkynningu. 

Nánar á vef HÍ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert