Lýsa yfir óvissustigi á morgun

mbl.is/Kristinn Magnússon

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjóra á landinu hefur lýst yfir óvissustigi á morgun vegna veðursins sem skella mun á landsmönnum á morgun.

Þetta kemur fram á facebooksíðu lögreglunnar á Suðurlandi.

„Eins og flestum ætti að vera ljóst þá er mikið óveður á leiðinni til landsins og mun koma yfir okkur Sunnlendinga á morgun og miðvikudag. Skv. upplýsingum frá Veðurstofunni mun veður þetta skella fyrst á Norðurlandi, en fikra sig svo suður um heiðar þegar líður á morguninn,“ segir á síðunni.

Fólk er hvatt til að vera ekki á ferli að óþörfu.

Lokað verður um Mosfellsheiði að Þingvöllum frá kl. 8 í fyrramálið, þrátt fyrir að áætlað sé að veðrið muni birtast þar um hádegið.

„Við biðjum ferðaþjónustuaðila sérstaklega að hafa lokanir í huga og huga að því að lenda ekki í þeim aðstæðum að vera innilokaðir t.a.m. á Gullhringnum með ferðamenn, því líkur eru á því að Hellisheiðin og Þrengslin muni einnig lokast þegar líður á daginn,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert