Milla ráðin aðstoðarmaður Lilju

Milla Ósk Magnúsdóttir.
Milla Ósk Magnúsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Milla Ósk Magnúsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra. 

Milla hefur síðastliðinn áratug starfað hjá Ríkisútvarpinu, síðustu ár sem fréttamaður en áður sem aðstoðarframleiðandi frétta og dagskrárgerðarkona í útvarpi og sjónvarpi. Þá var hún varaformaður Félags fréttamanna á Ríkisútvarpinu.

Milla er með ML-próf í lögfræði frá Háskóla Reykjavíkur þar sem hún sérhæfði sig í fjölmiðlarétti, auk þess að leggja áherslu á persónuupplýsinga- og vinnurétt. Hún mun hefja störf í ráðuneytinu hinn 10. desember. 

Samhliða mun Hafþór Eide Hafþórsson láta af störfum, en hann hefur verið mennta- og menningarmálaráðherra til aðstoðar frá desember 2017, að því er ráðuneytið greinir frá í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert