Sex á slysadeild vegna fimm umferðarslysa

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur þurft að flytja sex manns á slysadeild vegna fimm umferðarslysa í dag.

Öll meiðslin voru minniháttar.

Eitt slysanna varð í Ártúnsbrekkunni um klukkan 17.15 þegar tveir bílar rákust saman. Tveir hlutu minniháttar áverka, þar af ófrísk kona, og var hún flutt á slysadeild.

Auk umferðarslysanna fimm hefur slökkviliðið farið í tvö útköll vegna gruns um eld, eitt útkall vegna viðvörunarkerfis og eitt vegna vatnsleka.

Þar að auki hefur það sinnt 52 sjúkraflutningum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert