Yfirheyrðir vegna andláts í Úlfarsárdal

Fimm menn eru yfirheyrðir eftir að maður féll fram af …
Fimm menn eru yfirheyrðir eftir að maður féll fram af svölum í Úlfarsárdal í gær og lést. mbl.is/Alexander Gunnar

Lögregla hefur frá því í gærkvöldi yfirheyrt fimm menn sem handteknir voru síðdegis í gær vegna rannsóknar á andláti manns sem féll fram af svölum í fjölbýlishúsi í Úlfarsárdal í Reykjavík.

Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn sagði að mennirnir væru yfirheyrðir og málið í rannsókn. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um málið.

Maðurinn var fluttur á Landspítalann eftir að lögreglu barst tilkynning um að hann hefði fallið af svölunum á þriðja tímanum í gær. Hann var úrskurðaður látinn við komuna á Landspítala.

Hinn látni var er­lend­ur rík­is­borg­ari og sama á við um þá fimm sem eru í haldi lög­regl­unn­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert