Enginn verði á ferli eftir kl. 15 nema brýna nauðsyn beri til

Vindaspáin klukkan 16 í dag á höfuðborgarsvæðinu.
Vindaspáin klukkan 16 í dag á höfuðborgarsvæðinu. Kort/Veðurstofa Íslands

Skóla- og frístundastarf mun raskast frá hádegi í dag vegna óveðurs sem spáð er að gangi yfir höfuðborgarsvæðið. Enginn ætti að vera á ferli eftir klukkan 15 nema brýna nauðsyn beri til, að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Eins og fram hefur komið hefur verið gefin út appelsínugul viðvörun vegna óveðursins sem spáð er.

Veðurvefur mbl.is

Foreldrar sæki börn sín strax að skóladegi loknum

„Foreldrar og forráðamenn barna eru beðnir að sækja börn sín strax að skóladegi loknum til að tryggt sé að allir, börn, foreldar og starfsfólk, geti náð heim til sín áður en veðrið skellur á. Foreldrar leikskólabarna sæki börn sín fyrir kl. 15.

Allt frístunda- og félagsmiðstöðvastarf í Reykjavík fellur niður svo og starf skólahljómsveita. Eldri grunnskólanemendur fara því beint heim eftir skóladag og eru foreldrar beðnir að sjá til þess að þeir séu ekki á ferli þegar og eftir að veðrið skellur á.

Akstursþjónusta fatlaðra mun aka heim þeim skólabörnum sem þeirrar þjónustu njóta, strax að loknum skóladegi.

Þá verða sundlaugar, útibú Borgarbókasafnsins og söfn á vegum Reykjavíkurborgar lokuð eftir kl. 14 í dag.

Fólk er beðið að huga að lausamunum sem geta fokið og minnir Sorphirða Reykjavíkur íbúa sérstaklega á að huga vel að sorpílátum sínum og tryggja að þau fjúki ekki.
Lokanir skóla og stofnana eru tilkomnar vegna öryggisráðstafana en enginn ætti að vera á ferli í veðri eins og spáð er. Fólk er beðið að fylgjast vel með veðri í fjölmiðlum og fylgja tilmælum yfirvalda.

Appelsínugul viðvörun þýðir að það séu miðlungs eða miklar líkur á veðri sem geti valdið miklum samfélagslegum áhrifum, tjóni eða slysum og hugsanlega ógnað lífi og limum ef aðgát er ekki höfð,“ segir í tilkynningu frá borginni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert