Óveðrið færist yfir Austurland

Austfirðingar búa sig undir slæmt veður með lokun vega og …
Austfirðingar búa sig undir slæmt veður með lokun vega og skóla og fólk er hvatt til að halda sig heima. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þótt veðrið hafi heldur verið að ganga niður á höfuðborgarsvæðinu seint í gærkvöldi og á vesturhluta landsins heldur lægðin áfram að valda landsmönnum erfiðleikum. Spáð er leiðindaveðri á Austurlandi í dag.

Sérstaklega er varað við hvössum vindi og vindhviðum á Suðausturlandi. Undir Vatnajökli gæti vindhraðinn orðið 30 metrar á sekúndu og hviðurnar farið yfir 50 metra.

Aðgerðastjórnir á Austurlandi eru í viðbragðsstöðu vegna óveðursins. Fara átti yfir málin aftur í nótt eða snemma morguns. Skólahald fellur niður og flestum vegum verður lokað. Íbúar eru hvattir til að fylgjast með veðurspám og vera ekki á ferðinni nema af brýnni nauðsyn.

Sveitir sinntu 430 verkefnum

Veðrið í gær var verst á Norðurlandi vestra. Björgunarsveitir, lögregla og aðrir viðbragðsaðilar komu fólki og húseigendum til aðstoðar. 640 björgunarsveitarmenn voru á vaktinni og um klukkan 21.30 í gærkvöldi höfðu þeir sinnt liðlega 430 verkefnum. Talsvert eignatjón varð en ekki er vitað um slys á fólki.

Rafmagn fór af víða á Norðurlandi og Vestfjörðum en varaafl er keyrt á flestum stærri stöðum. Mesta tjónið varð á Kópaskerslínu þar sem á annan tug straura brotnaði. Tekur marga daga að gera við línuna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert