TF-LIF og TF-EIR, þyrlur Landhelgisgæslunnar, fluttu í nótt fjóra kafara, lögreglumann og tíu sérhæfða björgunarsveitarmenn norður í Sölvadal þar sem leit fer fram í Núpá. Leit stendur þar enn yfir að unglingspilti sem féll í Núpá í gærkvöldi.
Pilturinn var við vinnu við stíflu í ánni er hann varð fyrir krapaskafli og féll í ána en bóndinn slapp naumlega.
TF-LIF lenti við Saurbæjarkirkju laust eftir klukkan eitt í nótt þar sem kafararnir fóru frá borði. Þyrlan var við leit á svæðinu til 4:30 en þá var skyggni farið að versna.
TF-EIR var einnig kölluð út og tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli með tíu björgunarsveitarmenn klukkan 2:50 og lenti á Akureyrarflugvelli með björgunarsveitarmennina á fimmta tímanum. TF-EIR flaug að því búnu aftur til Reykjavíkur en TF-LIF er til taks á Akureyri.