Hátt í 300 manns tekið þátt í leitinni

Frá vettvangi leitarinnar í Sölvadal í nótt.
Frá vettvangi leitarinnar í Sölvadal í nótt. Ljósmynd/Slysavarnafélagið Landsbjörg

Hátt í þrjú hundruð manns hafa komið að leitinni að piltinum sem féll í Núpá í gærkvöldi. Núna eru um eitt hundrað manns að störfum á svæðinu.

Þetta segir Davíð Már Bjarnason hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Hann segir leitina vera í fullum gangi og þannig verði það þangað til annað verði ákveðið.

Meðal annars hefur fjöldi kafara tekið þátt í leitinni. 

Fyrr í dag tók Hercu­les-flug­vél danska flug­hers­ins á loft frá Reykja­vík­ur­flug­velli. Um borð voru fimm starfs­menn Land­helg­is­gæsl­unn­ar, þar af fjór­ir kafar­ar, um 30 björg­un­ar­sveit­ar­menn frá Lands­björg, auk starfs­manna frá Rarik og Landsneti.

Hátt í 300 manns hafa tekið þátt í leitinni.
Hátt í 300 manns hafa tekið þátt í leitinni. Kort/Map.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert