Enn er mikil ófærð á Norður- og Austurlandi en byrjað er að hreinsa vegi þar. Á Vesturlandi eru Holtavörðuheiði og Brattabrekka enn lokaðar en aðrar aðalleiðir færar.
Flestar leiðir eru færar um sunnanvert landið og sama á við um suðvesturhorn landsins en Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði eru enn lokaðar. Enn er meira og minna allt ófært á Vestfjörðum.